Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 764. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1332  —  764. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um friðlýst svæði og virkjunarframkvæmdir.

Frá Kristjáni Þór Júlíussyni.



     1.      Hvaða landsvæði njóta friðlýsingar í samræmi við 50. gr. laga um náttúruvernd?
     2.      Hver þessara landsvæða eru friðlýst með þeim skilmálum að virkjunarframkvæmdir séu heimilaðar þar?


Skriflegt svar óskast.