Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 767. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1335  —  767. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um rannsókn efnahagsbrota o.fl.

Frá Birgi Ármannssyni.



     1.      Hvernig skilgreinir ráðherra verkstjórnarhlutverk sitt í sambandi við rannsókn efnahagsbrota, annars vegar almennt og hins vegar sérstaklega í tengslum við rannsókn brota sem tengjast falli íslenska bankakerfisins haustið 2008?
     2.      Er ráðherra þeirrar skoðunar að viðbrögð Alþingis og stjórnvalda í tengslum við rannsókn efnahagsbrota í kjölfar bankahrunsins hafi verið umdeild á vettvangi stjórnmálanna, sbr. ágreining um frumvörp til breytinga á lögum frá því í október 2008 til dagsins í dag, fjárveitingar til þeirra embætta sem með rannsókn fara og aðrar ráðstafanir og stjórnvaldsákvarðanir sem tengjast rannsókn slíkra brota?