Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 453. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1340  —  453. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um tekjur af akstri um Suðurlandsveg, Vesturlandsveg og Reykjanesbraut.

     1.      Hve miklar tekjur má áætla að ríkissjóður hafi af akstri um Suðurlandsveg, Vesturlandsveg og Reykjanesbraut, miðað við fjölda bíla sem þar fer að jafnaði um og áætlaðan eldsneytiskostnað?
    Við svarið er nauðsynlegt að gefa sér forsendur og er hér miðað við eftirfarandi:
     *      Suðurlandsvegur: Biskupstungnabraut–Nesbraut. Lengd: 47,10 km. Umferð 2009: 7.933 bílar á sólarhring.
     *      Vesturlandsvegur: Þingvallavegur–Hvalfjarðarvegur. Lengd: 15,57 km. Umferð 2009: 6.800 bílar á sólarhring.
     *      Reykjanesbraut: Fjarðarbraut–Víknavegur. Lengd: 30,94 km. Umferð 10.488 bílar á sólarhring.
     *      Bensíneyðsla meðalbíls 10 l/100 km.
    Til einföldunar er gengið út frá að allir bílar séu bensínbílar en talið er að það skipti litlu máli fyrir niðurstöðurnar.
    Tekjur ríkisins af eldsneyti eru eftirfarandi:
     *      Markaðar tekjur til vegagerðar 38,55 kr./l.
     *      Vörugjald, kolefnisgjald og VSK 71,12 kr./l.
     *      Samtals 109,67 kr./l.
    Þungaskattur af stórum bílum er áætlaður 5% af öðrum mörkuðum tekjum.
    Ætla má að heildarskatttekjur ríkisins af eldsneyti og þungaskatti á þessum vegum verði milli 3 og 3,5 milljarðar kr. árið 2011, en taka verður fram að um grófa áætlun er að ræða og óvissa töluverð. Þar af eru markaðar tekjur til vegagerðar ríflega þriðjungur.

     2.      Hve miklum tekjum er áætlað að fyrirhuguð veggjöld, eða tollar, á sömu vegum skili á ári miðað við sama umferðarþunga?
    Ekkert hefur verið ákveðið um hugsanlega upphæð veggjalda á þessum vegum, sem m.a. er háð útfærslu mannvirkja, vaxtakostnaði við lánsfé, lengd lánstíma o.fl. Hugsanlegar tekjur af veggjöldum eru m.a. háðar þessum þáttum. Sem grófa viðmiðun út frá dæmum sem reiknuð hafa verið má nefna að heildartekjur af þessum vegum gætu verið 1,5–2 milljarðar kr. á ári.

     3.      Hvernig er áætlun fyrir næstu tíu ár miðað við spár um umferð um hvern veg?
    Mjög erfitt er við núverandi aðstæður að svara þessari spurningu. Umferð á þjóðvegum hefur að jafnaði verið að dragast saman frá árinu 2007 og eru horfur á að hún muni dragast saman í ár, 2011, jafnvel allt að 5%. Þá þarf að gefa sér forsendur um verðlag og um tækni og orkugjafa. Ef notaðar eru eftirfarandi forsendur undanfarinna ára má með öllum fyrirvörum reikna niðurstöðu:
     *      Gengið er út frá talinni umferð 2009.
     *      Gengið er út frá að umferð milli 2009 og 2011 aukist um 2% og síðan verði árleg aukning umferðar 2%.
    Miðað við þessar forsendur ættu heildartekjur af eldsneyti og þungaskatti að vera 3,5–4 milljarðar kr. á ári eftir 10 ár, og tekjur af veggjöldum 1,8–2,4 milljarðar kr. á ári miðað við sömu forsendur og reiknað er með í 2. tölul. hér að framan.