Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 665. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1344  —  665. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Ólafar Nordal um ákvarðanir ríkisstjórnar og fundargerðir.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Eru ákvarðanir ríkisstjórnar í veigamiklum málum og þar að lútandi fundargerðir í samræmi við 17. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. nýlega ákvörðun um að styðja yfirtöku NATO á hernaðaraðgerðum í Líbíu?

    Samkvæmt 17. gr. stjórnarskrárinnar skal halda ráðherrafundi um nýmæli í lögum og mikilvæg stjórnarmálefni. Framangreint felur einvörðungu í sér skyldu til að bera mál upp og kynna þau í ríkisstjórn. Ríkisstjórn Íslands er með öðrum orðum ekki fjölskipað stjórnvald eða stjórnsýslunefnd sem tekur sameiginlegar stjórnvaldsákvarðanir heldur liggur valdið til töku slíkra ákvarðana almennt hjá þeim ráðherra sem ber ábyrgð á viðkomandi stjórnarmálefni í samræmi við reglugerð um Stjórnarráð Íslands og lög frá Alþingi. Ekki er fjallað um ritun fundargerða í 17. gr. stjórnarskrárinnar.