Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 712. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1346 — 712. mál.
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um kröfur um starfsleyfi fjármálafyrirtækja.
1. Er hægt að vera með starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu sem fjármálafyrirtæki án þess að vera með stjórnarformann?
Lög um hlutafélög, nr. 2/1995, gilda um stjórn fjármálafyrirtækis, enda sé ekki á annan veg mælt í lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Í 1. mgr. 51. gr. laga nr. 161/2002 segir að stjórn skuli skipuð eigi færri en þremur mönnum. Þó skulu stjórnir viðskiptabanka, sparisjóða og lánafyrirtækja skipaðir eigi færri en fimm mönnum. Einungis eru gerðar kröfur um fjölda stjórnarmanna í lögum um fjármálafyrirtæki en þar er ekki að finna ákvæði um stjórnarformenn, sbr. 70. gr. laga nr. 2/1995, eða hvernig stjórn skuli skipta með sér verkum.
Samkvæmt 2. mgr. 54. gr. laga um fjármálafyrirtæki skal stjórn hvers fjármálafyrirtækis setja sér starfsreglur þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd starfa stjórnar. Í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fjármálafyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins er m.a. tekið fram að í starfsreglum stjórnar skuli fjallað um skiptingu starfa stjórnar og starfslýsingu stjórnar, stjórnarformanns og framkvæmdastjóra. Fjármálafyrirtækjum ber að fylgja viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti fjármálafyrirtækja skv. 3. mgr. 19. gr. laga um fjármálafyrirtæki.
Fjármálafyrirtækjum er gert að starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur á fjármálamarkaði skv. 1. mgr. 19. gr. laga nr. 161/2002. Fjármálaeftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn 1. og 2. mgr. 19. gr., sbr. 7. tölul. 110. gr. sömu laga.
Fjármálaeftirlitið hefur heimildir til að afturkalla starfsleyfi fjármálafyrirtækis brjóti fyrirtækið alvarlega eða ítrekað gegn lögum um fjármálafyrirtæki skv. 7. tölul. 1. mgr. 9. gr. laga um fjármálafyrirtæki.
2. Hefur eitthvert fjármálafyrirtæki verið án stjórnarformanns í sex mánuði eða lengur?
Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu hefur því borist ein ábending um að ekki hafi verið kosinn stjórnarformaður hjá fjármálafyrirtæki. Það mál var kannað af starfsmanni Fjármálaeftirlitsins og reyndist ekki eiga við rök að styðjast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1346 — 712. mál.
Svar