Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 742. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1360 — 742. mál.
innanríkisráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um ómerkingu héraðsdóma.
1. Í hversu mörgum málum hefur Hæstiréttur ómerkt héraðsdóm árin 2008, 2009 og 2010 og fram til 1. mars 2011, sundurliðað eftir árum?
Samkvæmt upplýsingum frá Hæstarétti voru málin 17 árið 2008, 13 árið 2009, 13 árið 2010 og sjö fram til 1. mars 2011.
2. Voru ástæður ómerkingar í fyrrgreindum málum:
a. að Hæstiréttur taldi líkur vera á að mat héraðsdóms á sönnunargildi munnlegs framburðar fyrir héraðsdómi væri rangt, svo að einhverju skipti um úrslit málsins,
b. að héraðsdómari hefði ekki í úrlausn sinni fjallað um allar málsástæður aðila,
c. að héraðsdómari hefði ekki, fyrir dómsuppsögu, gætt ákvæða 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, ekki gætt ákvæða 184. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, eða af sambærilegri ástæðu úr tíð eldri laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála,
d. aðrar?
Á árinu 2008 voru þrír dómar ómerktir vegna þess sem tilgreint er í a-lið, einn vegna b- liðar, einn vegna c-liðar og 14 vegna d-liðar. (Þar af voru tveir dómar ómerktir vegna hvors tveggja a- og d-liðar.)
Á árinu 2009 voru þrír dómar ómerktir vegna þess sem tilgreint er í a-lið, fjórir vegna b- liðar, einn vegna c-liðar og átta dómar vegna d-liðar. (Þar af var einn dómur ómerktur vegna hvors tveggja a- og d-liðar og tveir dómar vegna hvors tveggja b- og d-liðar.)
Á árinu 2010 voru fjórir dómar ómerktir vegna þess sem tilgreint er b-lið, sex vegna c- liðar og þrír dómar vegna d-liðar.
Á árinu 2011, fram til 1. mars sl., var einn dómur ómerktur vegna þess sem tilgreint er í a-lið a, einn vegna c-liðar og fimm vegna d-liðar.
3. Við hvaða héraðsdómstóla voru hinir ómerktu dómar kveðnir upp, sundurliðað með sama hætti og hér að framan?
Á árinu 2008 voru 11 dómar Héraðsdóms Reykjavíkur ómerktir, einn dómur Héraðsdóms Reykjaness, fjórir dómar Héraðsdóms Suðurlands og einn dómur Héraðsdóms Vestfjarða.
Á árinu 2009 voru níu dómar Héraðsdóms Reykjavíkur ómerktir, tveir dómar Héraðsdóms Reykjaness, einn dómur Héraðsdóms Suðurlands og einn dómur Héraðsdóms Norðurlands vestra.
Á árinu 2010 voru 11 dómar Héraðsdóms Reykjavíkur ómerktir, einn dómur Héraðsdóms Reykjaness og einn dómur Héraðsdóms Suðurlands.
Á árinu 2011, fram til 1. mars sl., voru sjö dómar Héraðsdóms Reykjavíkur ómerktir.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1360 — 742. mál.
Svar