Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 559. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1361 — 559. mál.
innanríkisráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um ákvarðanir Hæstaréttar um endurupptöku mála.
1. Hve margar af þeim 32 beiðnum um endurupptöku máls fyrir Hæstarétti sem synjað var 2000–2010 (sbr. þskj. 909, 409. mál) voru afgreiddar af þremur dómurum og hve margar af fimm dómurum við réttinn?
Samkvæmt upplýsingum frá Hæstarétti tóku þrír dómarar ákvörðun um afgreiðslu máls í 31 tilviki og í einu tilviki allir dómarar Hæstaréttar.
2. Hvernig var staðið að vali dómara sem ákváðu að synja endurupptöku máls? Hafði einn dómari eða fleiri í hverju tilviki dæmt það mál sem óskað var endurupptöku á?
Samkvæmt upplýsingum frá Hæstarétti er það forseti Hæstaréttar sem tekur ákvörðun hverju sinni um hvaða dómurum er falið að taka ákvörðun um beiðni um endurupptöku máls. Í tíu tilvikum höfðu þeir dómarar sem tóku ákvörðun um beiðni um endurupptöku ekki dæmt málið, í sextán tilvikum hafði einn dómari sem tók þátt í ákvörðun um afgreiðslu á beiðni um endurupptöku tekið þátt í að dæma það og í fimm tilvikum höfðu tveir dómarar tekið þátt í dómi. Í því tilviki þegar allir dómarar tóku þátt í að afgreiða beiðni voru á meðal þeirra þeir þrír sem dæmdu málið.
3. Hver er skýringin á því að ákvarðanir Hæstaréttar um endurupptöku máls og synjun um endurupptöku máls eru ekki birtar opinberlega?
Hæstiréttur bendir á að ekki er gert ráð fyrir lögum samkvæmt að þessar ákvarðanir séu birtar opinberlega og auk þess hafi þær ekki almennt gildi.
4. Telur ráðherra ástæðu til að breyta lögum eða verklagi við ákvörðun um endurupptöku mála sem Hæstiréttur hefur dæmt?
Ráðherra telur koma til greina að láta skoða hvort ástæða sé til að breyta lögum við endurupptöku mála sem Hæstiréttur hefur áður dæmt. Almennt verklag við vinnslu mála í Hæstarétti eru hins vegar á forræði og ábyrgð forseta Hæstaréttar samkvæmt lögum um dómstóla.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1361 — 559. mál.
Svar