Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 689. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1366  —  689. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um ferðir hreyfihamlaðra á vélknúnum ökutækjum utan vega.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvað líður undirbúningi lagafrumvarps sem heimili ferðir hreyfihamlaðra á vélknúnum ökutækjum utan vega á leiðum sem aðeins er leyft að fara um fótgangandi, svo þeim sé gert kleift að njóta útivistar sem er þeim annars illmöguleg, t.d. stangveiða eða ferða um þjóðgarða og önnur vernduð svæði?

    Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. laga nr. 44/1999, um náttúruvernd, er meginreglan sú að bannað er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega, en þó er heimilt að aka slíkum tækjum á jöklum, svo og á snjó utan vega utan þéttbýlis svo fremi sem jörð er snævi þakin og frosin. Samkvæmt 2. mgr. 17. gr. kveður umhverfisráðherra, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar, í reglugerð á um aðrar undanþágur frá banni skv. 1. mgr., m.a. vegna starfa manna við landbúnað, landmælingar, línu- og vegalagnir og rannsóknir.
    Reglugerð nr. 528/2005, um takmarkanir á umferð í náttúru Íslands, er m.a. sett með stoð í 17. gr. náttúruverndarlaga. Þar er hins vegar ekki kveðið á um heimild til að veita undanþágur frá banni við akstri utan vega heldur er eingöngu mælt fyrir um undantekningar frá banninu, þá aðallega vegna tiltekinna starfa.
    Umhverfisráðuneytið hefur hug á því að gera breytingar á reglugerð nr. 528/2005 og hefur í því skyni óskað eftir tillögum Umhverfisstofnunar varðandi mögulegar undanþágur frá 17. gr. náttúruverndarlaga vegna utanvegaaksturs fatlaðra einstaklinga, með hliðsjón af ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Tillögur stofnunarinnar um breytingar á reglugerðinni hafa nú þegar borist og er nú unnið með þær af hálfu lögfræðinga ráðuneytisins. Gera má því ráð fyrir því að drög að breytingu á reglugerðinni verði á næstunni send til umsagnar viðeigandi aðila og væntanlega afgreidd í framhaldinu.