Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 770. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1380 — 770. mál.
til fjármálaráðherra um Landsvirkjun.
1. Hvert er virði Landsvirkjunar í íslenskum krónum? Hvert er virði eigna Landsvirkjunar og hvað eru skuldirnar háar í íslenskum krónum?
2. Hver var árlegur rekstrarkostnaður Landsvirkjunar árin 2005–2010? Hvert var tap/hagnaður fyrirtækisins á sama árabili?
3. Hvernig eru skuldir Landsvirkjunar til komnar og hvernig skiptast þær eftir gjaldmiðlum? Hverjar eru eftirstöðvar skulda vegna Kárahnjúkavirkjunar?
4. Hvernig stendur fjármögnun vegna lána sem eru á gjalddaga í ár? Um hve háar fjárhæðir er að ræða?
5. Hefur Landsvirkjun eða íslenska ríkið varasjóð sambærilegan þeim sjóði sem Reykjavíkurborg hafði gagnvart Orkuveitu Reykjavíkur komi til greiðslufalls eða gjaldfellingar lána?
6. Hvernig er skuldastaða Landsvirkjunar borið saman við önnur sambærileg orkufyrirtæki í Evrópu?
7. Hver er arðsemiskrafa Landsvirkjunar?
8. Hver er eigendastefna ríkisins varðandi Landsvirkjun? Lítur ráðherra svo á að fyrirtækið sé á samkeppnismarkaði, fákeppnismarkaði eða einokunarmarkaði?
9. Hvernig skiptist orkusala Landsvirkjunar til: a. innlendra aðila, b. erlendra aðila?
10. Hefur það verið rætt innan ríkisstjórnarinnar, milli fjármálaráðherra og forstjóra Landsvirkjunar eða annars staðar í ríkiskerfinu hvort ríkið eigi að selja hluta af Landsvirkjun til að dreifa eigendaáhættu ríkisins í fyrirtækinu?
11. Er það stefna ríkisstjórnarinnar að auka orkuframleiðslu Landsvirkjunar úr 17 í 35 twst á ári horft til næstu 14 ára? Ef svo er, til hvaða virkjunarkosta er litið, skipt eftir: a. landsfjórðungum, b. svæðum innan landsfjórðunga?
12. Er það stefna ríkisstjórnarinnar að stuðla að því að sæstrengur verði lagður til annarra Evrópulanda á vegum Landsvirkjunar? Ef svo er, hver er áætlaður kostnaður við lagningu slíks sæstrengs og hvernig er fjármögnun hans hugsuð?
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1380 — 770. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um Landsvirkjun.
Frá Vigdísi Hauksdóttur.