Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 625. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1383 — 625. mál.
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um fyrirgreiðslu og afskriftir viðskiptamanna bankanna.
1. Hvernig er tryggt að sambærilegir viðskiptamenn bankanna fái ekki ólíka fyrirgreiðslu og afskriftir?
Þegar kemur að afskriftum eiga fjármálafyrirtækin öll að starfa eftir sömu leikreglum, hvort heldur er um að ræða einstaklinga eða fyrirtæki. Þær reglur sem þar koma helst til álita eru:
I. Lög nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins (lög um sértæka skuldaaðlögun)
II. Samkomulag um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun frá 29. október 2009, sbr. 2. gr. laga um sértæka skuldaaðlögun
III. Sameiginlegar verklagsreglur um úrlausn skuldavanda fyrirtækja frá 2. mars 2010, sbr. 3. gr. laga um sértæka skuldaaðlögun
IV. Reglugerð nr. 307/2010, um störf eftirlitsnefndar, sbr. lög nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.
V. Samkomulag um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun einstaklinga frá 22. desember 2010
VI. Samkomulag um úrvinnslu skuldamála fyrirtækja og átak til að vinna að skuldavanda lítilla og meðalstórra fyrirtækja frá 15. desember 2010 (Beina brautin).
Einnig má nefna greiðsluaðlögun, sbr. lög nr. 101/2010, um greiðsluaðlögun einstaklinga, lög nr. 50/2009, um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafa á húsnæði, og X. kafla laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl. Við greiðsluaðlögun getur verið um að ræða töluverðar afskriftir en það ferli fer í gegnum umboðsmann skuldara, umsjónarmenn og eftir atvikum dómstóla eftir fyrirframákveðnum leikreglum. Ekki verður frekar rætt um afskriftir sem stafa frá greiðsluaðlögun í svari þessu.
2. Hvernig er háttað eftirliti með afskriftum viðskiptamanna í bankakerfinu?
Með lögum nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins, var sett á fót eftirlitsnefnd um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar. Nefndina skipa María Thjell, forstöðumaður lagastofnunar Háskóla Íslands, formaður, og Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Sigríður Ármannsdóttir, endurskoðandi og eigandi APAL endurskoðunarskrifstofu, sat líka í nefndinni en hefur nýverið sagt sig úr henni og er nú unnið að skipan nýs endurskoðanda líkt og lögin gera ráð fyrir. Í febrúar sl. var gengið frá ráðningu þriggja starfsmanna fyrir nefndina sem starfa á ábyrgð og undir handleiðslu hennar, en heimild fyrir ráðningu þeirra fékkst með lögum nr. 151/2010 sem samþykkt voru frá Alþingi í desember sl. Nefndin er skipuð til 31. desember 2011 en þá falla I. og II. kafli laganna brott.
Við samningu þessa svars var leitað eftir upplýsingum frá nefndinni um hvernig hún hagar störfum sínum og byggist svarið á þeim upplýsingum.
Hlutverk nefndarinnar er að kanna að eigin frumkvæði hvort eftirlitsskyldir aðilar á fjármálamarkaði framfylgja samræmdum reglum sem settar eru á grundvelli laga um sértæka skuldaaðlögun. Þá skal nefndin fylgjast með því að við framkvæmd laganna sé gætt sanngirni og réttlæti á milli skuldara.
Eftirlitsnefndin hefur því eftirlit með þeim reglum sem nefndar eru í sex töluliðum hér að framan. Þá hafa bankarnir einnig boðið upp á ýmis önnur úrræði fyrir viðskiptavini í greiðsluerfiðleikum og hefur eftirlitsnefndin túlkað hlutverk sitt þannig að henni beri að hafa eftirlit með öllum þeim úrræðum sem beitt er í tilvikum þar sem sértæk skuldaaðlögun gæti komið til greina. Nefndin skoðar því ekki eingöngu tilfelli þar sem um sértæka skuldaaðlögun er að ræða.
Nefndin hefur á starfstíma sínum fundað reglulega með forsvarsmönnum bankanna, forstöðumönnum einstakra deilda/sviða, innri endurskoðendum, umboðsmönnum viðskiptavina, bankastjórum o.fl. Á þeim fundum er farið yfir einstök mál auk almennra atriða er varða til að mynda innri verklagsreglur og almenna framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar. Einnig er farið yfir beitingu annarra úrræða, svo sem 110% aðlögunar húsnæðislána, framsetningu á heimasíðum og hvernig skuli bætt úr, ágalla í upplýsingagjöf almennt og/eða hjá einstökum útibúum, starfssvið umboðsmanna viðskiptavina og samvinnu við umboðsmenn viðskiptavina, svo fátt eitt sé talið. Fjölmörg önnur atriði eru yfirfarin og rædd.
Nefndin fundar einnig með Fjármálaeftirlitinu, umboðsmanni skuldara, Íbúðalánasjóði, lífeyrissjóðum, sparisjóðum, SFF, Samkeppniseftirlitinu og þingnefndum og hefur jafnframt mætt á þingflokksfundi til að upplýsa og greina frá störfum sínum.
Nefndin hefur aðgang að aðstöðu innan fjármálastofnananna þar sem skoðunarvinnan fer fram og hefur henni verið úthlutað sérstöku gagnasvæði innan þeirra. Eftirlit nefndarinnar með einstökum málum fer þannig fram að nefndin hefur útbúið skilagrein sem fjármálastofnanir, sem aðild eiga að samkomulagi um sértæka skuldaaðlögun, þurfa að fylla út og uppfæra mánaðarlega og setja á gagnasvæði nefndarinnar, þar sem fram koma upplýsingar um afgreiðslu mála. Þyki nefndinni, á grundvelli skilagreinarinnar, ástæða til að skoða viðkomandi afgreiðslu nánar gerir hún það. Nefndin velur enn fremur færslur af þessum skilagreinum af handahófi til frekari skoðunar. Inn á þessar skilagreinar eru færðar upplýsingar um öll fyrirtæki, hvort sem fallist er á afskrift, henni er hafnað eða farin er önnur leið en afskrift samkvæmt reglum um sértæka skuldaaðlögun. Nefndin fær einnig uppfærða lista yfir afgreiðslu mála einstaklinga í einstökum bönkum. Með tilkomu starfsmanna nefndarinnar mun hún geta skoðað fleiri mál og tekið fleiri úrtök.
Eftirlitsnefndin er með netfang, þar sem einstaklingar og forsvarsmenn fyrirtækja geta sent inn kvartanir og erindi. Hefur nefndin svarað þeim aðilum þannig að málið verði skoðað en nefndin geti ekki upplýst hver niðurstaða skoðunar verði. Komist nefndin að þeirri niðurstöðu að málsmeðferð í viðkomandi máli hafi ekki verið í samræmi við reglur eða sanngirni og jafnræðis ekki gætt, er farið fram á við viðkomandi fjármálafyrirtæki að afgreiðslan sé leiðrétt. Ef ekki er brugðist við því getur nefndin sent ráðherra álit, sé um einstakling að ræða en til Fjármálaeftirlits (FME) varði brotið fyrirtæki.
Enn sem komið er hafa athugasemdir nefndarinnar leitt til leiðréttinga og ekki hefur komið til þess að ráðherra eða FME sé sent álit.
Nefndin skilaði skýrslu til ráðherra í mars 2010 sem ráðherra kynnti fyrir Alþingi í samræmi við 5. gr. laganna. Eftirlitsnefndin skilaði annarri skýrslu sinni 30. september 2010 þar sem er að finna ýtarlegar upplýsingar um framkvæmd eftirlits hjá nefndinni og hvernig eftirliti er háttað í tilviki einstaklinga og fyrirtækja. Nefndin hyggst skila næstu skýrslu, um mitt ár 2011, en nefndin telur mikilvægt að ráðherra, Alþingi og almenningur sé upplýstur um stöðu mála, þegar u.þ.b. hálft ár er eftir af gildistíma laganna
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1383 — 625. mál.
Svar