Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 670. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1414  —  670. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um verktakasamninga.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu margir eru starfandi á verktakasamningum í Stjórnarráðinu, sundurgreint eftir ráðuneytum?

    Í 49. gr. þingskapa segir að skriflegt svar við fyrirspurnum eigi að senda forseta þingsins að jafnaði eigi síðar en tíu virkum dögum eftir að fyrirspurn berst ráðuneyti. Enn fremur segir í sömu grein þingskapa að miða eigi við að fyrirspurnum sé unnt að svara í stuttu máli.
    Fyrirspurnir sem beinast að öllum ráðuneytum eru sjaldan þess eðlis að þeim verði svarað í stuttu máli og nánast er útilokað að svara slíkum fyrirspurnum innan tíu virkra daga frá því að fyrirspurn er leyfð. Þetta stafar af því að verkferlið við vinnslu svara við fyrirspurnum af þessu tagi er tímafrekara en svo að þessi svarfrestur geti talist nægilegur. Jafnan fer nokkur tími í að afmarka og skilgreina efni fyrirspurnar áður en unnt er að beina erindum til annarra ráðuneyta vegna hennar. Oft koma upp frekari álitaefni við vinnslu svara í einstökum ráðuneytum um það hvernig rétt sé að afmarka efni fyrirspurnar og samræma þarf sjónarmið í því efni og skýra.
    Forsætisráðuneytið getur ekki, innan þess ramma sem skriflegum fyrirspurnum er settur, svarað fyrirspurn þingmannsins á þskj. 1187. Jafnframt er bent á að fyrirspurnin varðar málefni sem eru á ábyrgð allra ráðherra í ríkisstjórn en ekki einungis forsætisráðherra en það er skilyrði samkvæmt ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 49. gr. þingskapalaga að fyrirspurn sé beint til þess ráðherra sem ber ábyrgð á máli.
    Ráðuneytið bendir á að alþingismenn geta óskað skriflegrar skýrslu um mál sem mikilvæg eru í þjóðfélagsumræðunni. Í 46. gr. þingskapa eru ákvæði um þær beiðnir. Gert er ráð fyrir því að ráðherra hafi tíu vikur til að vinna skýrsluna.
    Forsætisráðuneytið hefur undanfarið átt samskipti við skrifstofu Alþingis um vinnslu umfangsmikilla fyrirspurna og framtíðarfyrirkomulag að því leyti innan Stjórnarráðs Íslands og er svar þetta sett fram í ljósi þeirra samskipta og frekari samskipta sem skrifstofa Alþingis hefur átt við alla ráðuneytisstjóra innan Stjórnarráðsins um þetta sama efni. Æskilegt er að framangreind álitamál verði tekin til ítarlegrar umfjöllunar í tengslum við yfirstandandi endurskoðun á þingsköpum.