Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 790. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1415  —  790. mál.




Beiðni um skýrslu



frá efnahags- og viðskiptaráðherra um launagreiðslur til stjórnenda banka, skilanefnda og slitastjórna.

Frá Árna Þór Sigurðssyni, Atla Gíslasyni, Álfheiði Ingadóttur, Ásbirni Óttarssyni,
Birni Vali Gíslasyni, Gunnari Braga Sveinssyni, Lilju Mósesdóttur,
Pétri H. Blöndal og Vigdísi Hauksdóttur.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að efnahags- og viðskiptaráðherra flytji Alþingi skýrslu um launagreiðslur til stjórnenda banka, skilanefnda og slitastjórna. Meðal þess sem óskað er eftir að fram komi í skýrslunni er eftirfarandi:
     1.      Hverjar voru mánaðarlegar launagreiðslur til hvers af æðstu stjórnendum (bankastjóra og bankaráðsmanna) Glitnis, Kaupþings og Landsbanka Íslands árin 2005–2008?
     2.      Hverjar voru mánaðarlegar launagreiðslur til hvers af æðstu stjórnendum (bankastjóra og bankaráðsmanna) Arion banka, Íslandsbanka og Nýja Landsbankans 2009–2011 (febrúarloka)?
     3.      Hverjar voru mánaðarlegar launagreiðslur til hvers skilanefndarmanns og slitastjórnarmanns Glitnis, Kaupþings og Landsbanka Íslands frá því að þessar nefndir/stjórnir voru settar á laggirnar til febrúarloka 2011?
     4.      Hvernig eru laun bankastjóra, bankaráða, skilanefnda og slitastjórna ákveðin?
    Óskað er eftir sundurliðun á hvern mánuð fyrir umrædd tímabil svo að launabreytingar og tímasetningar þeirra komi fram.