Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 796. máls.
Þskj. 1421 — 796. mál.
frá velferðarráðherra um viðbrögð við ábendingum Ríkisendurskoðunar í skýrslu um þjónustusamninga Barnaverndarstofu og lok þeirra.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að velferðarráðherra flytji Alþingi skýrslu um aðgerðir vegna ábendinga Ríkisendurskoðunar í skýrslu um þjónustusamninga Barnaverndarstofu og lok þeirra. Meðal þess sem óskað er eftir að fram komi í skýrslunni er eftirfarandi:
1. Með hvaða hætti velferðarráðuneytið og Barnaverndarstofa muni bregðast við ábendingum Ríkisendurskoðunar.
2. Rökstuðningur fyrir því ef ekki á að breyta eftir ábendingum Ríkisendurskoðunar.
3. Hvaða stefnu sé fylgt varðandi meðferðarúrræði barna, hvort breytingar hafi verið gerðar á henni eða hvort breytinga sé að vænta, hverjir muni þá vinna að þeim breytingum og með hvaða hætti eftirliti og mati á breytingum verði háttað.
Með bréfi dags. 24. febrúar 2011 vísaði forseti Alþingis skýrslu Ríkisendurskoðunar um þjónustusamninga Barnaverndarstofu og lok þeirra til félags- og tryggingamálanefndar. Nefndin fjallaði um skýrsluna og skilað inn áliti um hana, sjá þskj. 1417, 792. mál. Í því áliti kom m.a. fram að nefndin teldi rétt að fylgja málinu eftir. Leggur nefndin því fram þessa beiðni um skýrslu þar sem óskað er eftir því að velferðarráðherra geri grein fyrir því með hvaða hætti ráðuneyti hans og Barnaverndarstofa muni bregðast við þeim ábendingum sem Ríkisendurskoðun leggur fram í skýrslu sinni. Rétt þykir líka að það sé rökstutt sérstaklega ef ekki á að breyta í samræmi við ábendingarnar. Þá þykir nefndinni mikilvægt að í skýrslunni komi fram hvaða stefnu sé fylgt varðandi meðferðarúrræði barna, hvort breytingar hafi verið gerðar á henni eða hvort breytinga sé að vænta. Ef svo er, þá er óskað upplýsinga um það hverjir muni vinna að slíkum breytingum. Nefndin telur jafnframt nauðsynlegt að gerð verði grein fyrir því hvernig eftirliti verður háttað, svo og mati á breytingunum.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.
Þskj. 1421 — 796. mál.
Flutningsmenn.
Beiðni um skýrslu
frá velferðarráðherra um viðbrögð við ábendingum Ríkisendurskoðunar í skýrslu um þjónustusamninga Barnaverndarstofu og lok þeirra.
Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, Pétri H. Blöndal, Jónínu Rós Guðmundsdóttur, Guðmundi Steingrímssyni, Ásmundi Einari Daðasyni, Írisi Róbertsdóttur, Þórunni Sveinbjarnardóttur og Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að velferðarráðherra flytji Alþingi skýrslu um aðgerðir vegna ábendinga Ríkisendurskoðunar í skýrslu um þjónustusamninga Barnaverndarstofu og lok þeirra. Meðal þess sem óskað er eftir að fram komi í skýrslunni er eftirfarandi:
1. Með hvaða hætti velferðarráðuneytið og Barnaverndarstofa muni bregðast við ábendingum Ríkisendurskoðunar.
2. Rökstuðningur fyrir því ef ekki á að breyta eftir ábendingum Ríkisendurskoðunar.
3. Hvaða stefnu sé fylgt varðandi meðferðarúrræði barna, hvort breytingar hafi verið gerðar á henni eða hvort breytinga sé að vænta, hverjir muni þá vinna að þeim breytingum og með hvaða hætti eftirliti og mati á breytingum verði háttað.
Greinargerð.