Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 821. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1461  —  821. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um stofnframkvæmdir í vegagerð.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hvaða stofnframkvæmdir í vegagerð hafa verið auglýstar til útboðs á þessu ári? Svar óskast sundurliðað þar sem meðal annars komi fram upplýsingar um áætlaðan verktaka- og framkvæmdakostnað við hvert verkefni og lægsta boð.
     2.      Hvaða stofnframkvæmdir er áætlað að verði enn fremur boðnar út á þessu ári og hver er áætlaður framkvæmdakostnaður við hverja og eina þeirra?


Skriflegt svar óskast.