Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 536. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1537 — 536. mál.
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um skólagjöld og lán til greiðslu skólagjalda.
1. Hversu margir skólar sem viðurkenndir eru af ráðuneytinu, á öllum skólastigum, taka skólagjöld af nemendum á skólaárinu 2010–2011 og hvaða skólar eru það?
Um er að ræða 10 grunnskóla, 17 tónlistarskóla, 16 framhaldsskóla og 3 háskóla.
2. Hvaða þjónustu við nemendur eða efniskostnaði er skólagjöldum ætlað að standa undir?
Leitað var til skólanna um upplýsingar um upphæð skólagjalda og skýringar á því hvaða kostnaði gjöldunum er ætlað að standa undir. Skýringar skólanna er að finna í töflum 1, 2 og 3 fyrir hvert skólastig.
3. Hversu há eru gjöldin hjá viðkomandi skólum á yfirstandandi skólaári og hver voru þau næstu fjögur skólaár þar á undan?
Sjá töflu 1, 2 og 3.
Tafla 1
Tafla 2.
Tafla 3
4. Hver var áætluð heildarfjárhæð útlána Lánasjóðs íslenskra námsmanna til greiðslu skólagjalda sömu skólaár?
Sjá töflu 4.
Tafla 4 Skólagjaldalán í kr. innan lands 2006–2009
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1537 — 536. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um skólagjöld og lán til greiðslu skólagjalda.
1. Hversu margir skólar sem viðurkenndir eru af ráðuneytinu, á öllum skólastigum, taka skólagjöld af nemendum á skólaárinu 2010–2011 og hvaða skólar eru það?
Um er að ræða 10 grunnskóla, 17 tónlistarskóla, 16 framhaldsskóla og 3 háskóla.
2. Hvaða þjónustu við nemendur eða efniskostnaði er skólagjöldum ætlað að standa undir?
Leitað var til skólanna um upplýsingar um upphæð skólagjalda og skýringar á því hvaða kostnaði gjöldunum er ætlað að standa undir. Skýringar skólanna er að finna í töflum 1, 2 og 3 fyrir hvert skólastig.
3. Hversu há eru gjöldin hjá viðkomandi skólum á yfirstandandi skólaári og hver voru þau næstu fjögur skólaár þar á undan?
Sjá töflu 1, 2 og 3.
Tafla 1
Grunnskólar og tónlistarskólar
| Einkaskólar á grunnskólastigi | Skólagjöld í kr. á hvern nemanda á ári |
||||
| 2010–11 | 2009–10 | 2008–09 | 2007–08 | 2006–07 | |
| Alþjóðaskólinn á Íslandi | 210.000 | 200.000 | 190.500 | 175.250 | 175.250 |
| Athugasemdir: | Nemendur með lögheimili í Garðabæ greiða engin skólagjöld. Nemendur sem hafa lögheimili í öðrum nágrannasveitarfélögum Garðabæjar greiða skólagjöld. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldum er ætlað að standa undir allri almennri þjónustu við nemendur fyrir utan sértæka þjónustu sem nemendur gætu þarfnast með tilliti til ákveðinna greininga eða þroskahömlunar. Skólagjöld standa undir öllum almennum efniskostnaði fyrir utan ritföng og stílabækur. Skólinn hefur ávallt haft námsstyrktarsjóð sem einstaklingar geta sótt um styrk hjá til lækkunar á skólagjöldum. Í skólann sækja einnig nemendur nám sem ekki hafa lögheimili á Íslandi og greiða því ekki sveitarfélögin hluta af námi þeirra. Þeir nemendur greiða full skólagjöld án afsláttar. | ||||
| Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði | 23.750 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Athugasemdir: | Engin skólagjöld 2006–2010 en þá lagði Hafnarfjarðarbær til ókeypis húsnæði og svo 75% af meðallandskostnaði af rekstri grunnskóla á landinu samkvæmt lögum. Nú er leiga innheimt og því rukkað lágmarkshúsnæðisgjald. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Lágmarkshúsnæðisgjald til að greiða leigu fyrir skólahúsnæðið. Allt annað er greitt af skólanum, þar á meðal pappír, ritföng, skólataska o.fl. | ||||
| Barnaskóli Hjallastefnunnar, Garðabæ | 21.000 | 21.000 | 18.000 | 18.000 | 18.000 |
| Athugasemdir: | Ekki innheimt skólagjöld fyrir börn sem búa í Garðabæ enda greiðir sveitarfélagið fullt framlag með börnum sem sækja skólann. Börn sem stunda nám við skólann en búa utan Garðabæjar greiða 21.000 kr. á mán. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Nemendur við skólann fá allan búnað í skólanum, ekkert kemur að heiman. Skólagjöldin eru hins vegar ætluð til að vega upp í það sem á vantar af framlagi annarra sveitarfélaga en Garðabæjar. En það er einungis 75% af vegnu landsmeðaltali. | ||||
| Barnaskóli Hjallastefnunnar, Reykjavík | 99.750 | 99.750 | 99.750 | ||
| Athugasemdir: | Skólinn er á sínu þriðja starfsári. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldunum er ætlað að minnka bilið milli framlags sveitarfélagsins og kostnaðar við rekstur skólans. | ||||
| Landakotsskóli | 23.000 | 20.500 | 20.500 | 13.000 | 13.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöld renna til launa og almenns reksturs skólans, þ.m.t. efnisgjöld nemenda, styttri ferðir o.fl. | ||||
| Skóli Ísaks Jónssonar | |||||
| 6 ára nemendur | 180.000 | 190.000 | 190.000 | 170.000 | 170.000 |
| 5 ára nemendur | 190.000 | 180.000 | 180.000 | 160.000 | 160.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Framlög Reykjavíkur árið 2010–2011 með 6–9 ára nemendum eru 75% af heildarmeðalkostnaði á hvern nemanda á landsvísu sem í dag er 908.000 kr. Framlög Reykjavíkur árið 2010–2011 með 5 ára nemendum er 684.000 kr. Skólagjöldin eiga að brúa það bil sem upp á vantar. Skólinn hefur aldrei fengið húsnæðisstyrk með 5 ára nemendum eins og leikskólar í eigin húsnæði fá. Mismunandi framlög frá sveitarfélögum með 5 ára nemendum. | ||||
| Suðurhlíðarskóli | |||||
| 1.–4. bekkur | 100.800 | 100.800 | 100.800 | 92.400 | 92.400 |
| 5.–10. bekkur | 217.200 | 217.200 | 217.200 | 198.000 | 198.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Öll kennsla og efniskostnaður í þeim fögum þar sem það á við innifalið í skólagjöldum. Greitt er sérstaklega fyrir hádegismat og lengda viðveru yngri nemenda sem við köllum gæslu. | ||||
| Tjarnarskóli | 184.300 | 184.300 | 159.600 | 176.700 | 235.600 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Hagstofa Íslands reiknar meðalkostnað á grunnskólanemanda á hverju ári. Sjálfstætt reknir grunnskólar fá sem svarar 75% af þeirri uppæð með hverjum nemanda. Skólagjöldunum er ætlað að brúa bilið sem ekki fæst af opinberu fé. Foreldrar standa því undir 25% af rekstri skólans. | ||||
| Waldorfskólinn, Lækjarbotnum | 121.000 | 121.000 | 121.000 | 121.000 | 121.000 |
| Athugasemdir: | Annað barn í fjölskyldu greiðir 14.000 kr. og þriðja barn greiðir 10.000 kr. Skólagjöld eru greidd í 11 mánuði. | ||||
| Waldorfskólinn Sólstafir | 155.000 | 155.000 | 155.000 | 155.000 | 155.000 |
| Athugasemdir: | Að teknu tilliti til afslátta er meðaltal greiddra skólagjalda á yfirstandandi skólaári 80.000 fyrir hvern nemanda í skólanum. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldum er ekki ætlað að standa undir afmarkaðri eða viðbættri þjónustu eða efniskostnaði í skólanum. Til upplýsinga þá fer skólastarfið fram í gegnum listir, handverk og beina upplifun. Efnis-, verkfæra- og ferðakostnaður sem það hefur í för með sér skilgreinir skólinn sem almennan kennslukostnað. | ||||
| Tónlistarskólar viðurkenndir af ráðuneytinu | Skólagjöld í kr. á hvern nemanda á ári |
||||
| 2010–11 | 2009–10 | 2008–09 | 2007–08 | 2006–07 | |
| Allegro Suzuki tónlistarskóli | 128.000 | 118.000 | 118.000 | 105.000 | 96.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldum er ætlað að standa undir öðrum kostnaði en kennslulaunum, en launastyrkir sveitarfélaga nægja ekki fyrir kennslulaunum svo hluti skólagjalda nýtist í kennslulaun. | ||||
| Gítarskóli Íslands – GÍS | 98.000 | 96.000 | 96.000 | 94.000 | 90.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöld standa undir húsnæðiskostnaði og öðrum rekstrarkostnaði og í sumum tilfellum undir hluta af launakostnaði þar sem GÍS fær aðeins hluta af launakostnaði kennara greiddan frá sveitarfélögum miðað við nemendafjölda í skólanum. | ||||
| Nýi tónlistarskólinn | |||||
| Forskóli | 55.440 | 49.500 | 49.500 | 46.650 | 42.800 |
| Hljóðfæranám grunnnám | 97.776 | 87.300 | 87.300 | 81.640 | 74.900 |
| Hljóðfæranám miðnám | 110.768 | 98.900 | 98.900 | 92.430 | 84.800 |
| Hljóðfæranám framhaldsnám | 123.984 | 110.700 | 110.700 | 103.500 | 94.500 |
| Hljóðfæranám háskólanám | 137.088 | 122.400 | 122.400 | 114.450 | 105.000 |
| Söngnám grunnnám | 117.040 | 104.500 | 104.500 | 97.990 | 89.900 |
| Söngnám miðnám | 142.800 | 127.500 | 127.500 | 119.680 | 109.800 |
| Söngnám framhaldsnám | 168.896 | 150.800 | 150.800 | 141.650 | 129.500 |
| Söngnám háskólanám | 187.600 | 167.500 | 167.500 | 157.450 | 140.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldin eiga að standa undir öllum rekstri: húsnæði, þrifum, hljóðfærakosti og skrifstofu, þar með talin laun ritara. | ||||
| Söngskólinn Domus Vox | |||||
| Fornám | 45.000 | 40.000 | 40.000 | 33.000 | 30.000 |
| Grunnnám | 159.000 | 154.000 | 148.000 | 123.000 | 114.000 |
| Miðnám | 189.000 | 169.000 | 161.000 | 137.000 | 124.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldin eiga að dekka allan annan kostnað við skólann, svo sem húsaleigu, pappírsgjald, utanumhald (skrifstofa) og annan sameiginlegan kostnað. | ||||
| Söngskólinn í Reykjavík | 130.000 til 360.000 |
120.000 til 330.000 |
110.000 til 300.000 |
95.000 til 270.000 |
90.000 til 250.000 |
| Athugasemdir: | Skólagjöld eru mjög mismunandi eftir því hversu langt nemendur eru komnir í náminu. Boðið er upp á ýmis styttri námskeið á verði allt frá 20.000 kr. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Allur kostnaður við rekstur skólans greiðist af skólagjöldum annar en bein kennslulaun og launatengd gjöld þeim tengd: Húsnæði, viðhald húsnæðis, afborganir af lánum, vátryggingar, öryggisgæsla, hljóðfærakaup, viðhald hljóðfæra, námsefniskostnaður, tónleikahald, námskeiðahald, skrifstofurekstur, reikningsleg aðstoð, tölvukostnaður, hiti, rafmagn, sími, ræsting, hreinlætisvörur. | ||||
| Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík | 113.000* | 99.900 | 90.000 | 79.500 | 79.500 |
| Athugasemdir: | *Enginn systkinaafsláttur. Jafnaðargjald að ósk foreldra, óháð fjölda kennslustunda. 10% systkina afsláttur næstu fjögur skólaár á undan. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldum er ætlað að standa undir öllum daglegum rekstrarútgjöldum skólans, svo sem framkvæmdir til að gera húsnæði kennsluhæft, afborganir lána af húsnæði skólans, viðhald húsnæðis, fasteignagjöld, endurskoðandi, rekstur skrifstofu, tölvukostnað, pappír, ræsting, hljóðfærakaup, stillingar, viðgerðir. | ||||
| Tónlistarskóli Árbæjar | |||||
| Heilt nám | 92.800 | 86.100 | 86.100 | 82.000 | 77.000 |
| Hálft nám | 62.800 | 52.800 | 52.800 | 51.800 | 46.000 |
| Forskóli | 33.900 | 29.500 | 29.500 | 24.500 | 19.500 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Allri þjónustu og rekstri utan greiðslu kennaralauna samkvæmt lögum um tónlistarskóla. | ||||
| Tónlistarskóli FÍH | |||||
| Grunnnám, heilt 1.–3. stig | 140.400 | 130.000 | 111.632 | 99.671 | 92.288 |
| Grunnnám hálft 1.–3. stig | 97.200 | 90.000 | 78.141 | 69.769 | 64.601 |
| Miðnám, heilt 4.–5. stig | 183.600 | 170.000 | 146.616 | 130.907 | 121.210 |
| Miðnám, hálft 4.–5. stig | 129.600 | 120.000 | 102.631 | 91.635 | 84.847 |
| Framhalds, heilt 6.–8. stig | 226.800 | 210.000 | 175.271 | 156.492 | 144.900 |
| Framhalds, hálft 6.–8. stig | 151.200 | 140.000 | 122.690 | 109.544 | 101.430 |
| Söngnám grunn, heilt 1.–3. stig | 226.800 | 210.000 | 175.271 | 156.492 | 144.900 |
| Söngnám grunn, hálft 1.–3. stig | 151.200 | 140.000 | 122.690 | 109.544 | 101.430 |
| Söngnám mið, heilt 4.–5. stig | 248.400 | 230.000 | 199.197 | 177.854 | 164.680 |
| Söngnám mið, hálft 4.–5. stig | 172.800 | 160.000 | 139.438 | 124.498 | 115.276 |
| Söngnám FN, heilt 6.–8. stig | 297.000 | 275.000 | 238.981 | 213.376 | 197.570 |
| Söngnám FN, hálft 6.–8. stig | 205.200 | 190.000 | 167.286 | 149.363 | 138.299 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Samkvæmt lögum er kennslukostnaður greiddur af Reykjavíkurborg. Allur rekstrarkostnaður er greiddur af skólagjöldum svo sem húsaleiga, hljóðfæri, tæknibúnaður, ræsting, húsgæsla o.s.frv. | ||||
| Kennaradeild | 540.000 | 500.000 | 266.112 | 237.600 | 220.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Kennaradeild er sjálfbær og greiða kennaranemar allan kostnað af námi sínu. | ||||
| Tónlistarskólinn í Grafarvogi | 109.000 | 109.000 | 99.000 | 88.000 | 84.500 |
| Athugasemdir: | Fullt nám á hljóðfæri, þ.e. 2+30 mín. einkatímar, 60 mín. tónfræði, 60 mín. samspil eða hljómsveit eftir því sem við á. | ||||
| Tónlistarskólinn í Reykjavík | |||||
| Hljóðfæraleikur grunn 1.–3. stig | 127.000 | 119.000 | 111.000 | 103.000 | 96.000 |
| Hljóðfæraleikur, mið 4.–5. stig | 179.000 | 167.000 | 156.000 | 145.000 | 135.000 |
| Hljóðfæraleikur, framh. 7. stig | 202.000 | 189.000 | 189.000 | 176.000 | 164.000 |
| Hljóðfæraleikur, framh. 8. stig + | 279.000 | 261.000 | 244.000 | 227.000 | 211.000 |
| Söngdeild grunnnám 1.–3. stig | 215.000 | 201.000 | 188.000 | 175.000 | 163.000 |
| Söngdeild miðnám 4.–5. stig | 266.000 | 249.000 | 233.000 | 217.000 | 202.000 |
| Söngdeild fram 6.–9. stig | 292.000 | 273.000 | 255.000 | 237.000 | 220.000 |
| Aukahljóðfæri 1/2 klst. á viku | 51.000 | 48.000 | 45.000 | 42.000 | 39.000 |
| Aukasöngur án samsöngs og meðleiks | 51.000 | 48.000 | 45.000 | 42.000 | 39.000 |
| Aukasöngur með samsöng og meðleik | 103.000 | 96.000 | 90.000 | 84.000 | 78.000 |
| Tónfræðigreinar 1. námsgr. | 58.000 | 54.000 | 50.000 | 47.000 | 44.000 |
| Tónfræðigreinar 2. námsgr. | 80.000 | 75.000 | 70.000 | 65.000 | 60.000 |
| Tónfræðigreinar 3. námsgr.+ | 92.000 | 86.000 | 80.000 | 74.000 | 69.000 |
| Athugasemdir: | Vísað var til 7% hækkunar á milli ára – ekki gefnar upp tölur síðustu tvö skólaárin | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldin standa undir öllum rekstri skólans öðrum en kennslukostnaði sem greiddur er af sveitarfélögum. | ||||
| Tónmenntaskóli Reykjavíkur | 125.000 | 115.000 | 105.000 | 105.000 | 105.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldin standa undir kennslu og öllum efniskostnaði. | ||||
| Tónsalir | 90.000 | 42.000 | 40.000 | 39.000 | 37.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldum er ætlað að standa undir rekstri skólans, svo sem húsaleigu, þrifum, símakostnaði, ljósritun/pappírskostnaði, tækja-, hljóðfærakostnaði, almennu viðhaldi tækja, reksturs tölvukerfa, endurskoðun og bókhaldsþjónustu. | ||||
| Tónskóli Eddu Borg | |||||
| Forskóli og hálft nám | 66.300 | 66.300 | 61.900 | 54.800 | 52.800 |
| Fullt nám | 103.700 | 103.700 | 96.900 | 85.800 | 82.500 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Allur rekstrarkostnaður. Hljóðfærakaup og viðhald hljóðfæra, bækur, nótur, smááhöld til kennslu, t.d. nótnastatíf, hljómtæki o.fl. Rekstur skrifstofu, leiga og rekstur húsnæðis, auglýsingar o.fl. | ||||
| Tónskóli Hörpunnar | 110.400 | 110.400 | 110.400 | 110.400 | 110.400 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöld standa undir öllum rekstrarkostnaði skólans svo og launakostnaði að hluta á móti fjárframlagi Reykjavíkurborgar. Reykjavík greiðir skólanum fyrir kennslu 68 nemenda. Í skólanum eru 198 nemendur, allt börn og fá þau öll að njóta til jafns framlags borgarinnar, en greiða sjálf mismuninn með skólagjöldum. | ||||
| Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar | |||||
| Forskóladeild | 58.500 | 56.500 | 56.500 | 51.500 | 49.500 |
| Suzukideild | 72.000 | 69.000 | 69.000 | 63.000 | 60.500 |
| Hljóðfæra- og söngdeild | 93.000 | 89.000 | 89.000 | 82.000 | 79.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldin standa undir öllum rekstri skólans öðrum en launakostnaði kennara, þ.e. kostnaði vegna húsnæðis, ræstingu, skrifstofureksturs, hljóðfæra og kennslutækja. | ||||
| Tónskólinn Do Re Mi | |||||
| Einkakennsla | 94.300 | 89.820 | 89.820 | 83.829 | 78.942 |
| Samkennsla og einkakennsla | 84.800 | 80.830 | 80.830 | 75.446 | 71.048 |
| Samkennsla og einkakennsla | 77.600 | 73.930 | 73.930 | 69.024 | 67.100 |
| Forskólanám | 53.680 | 51.130 | 51.130 | 47.718 | 44.936 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Öllu öðru en kennslukostnaði svo sem húsnæði, skrifstofurekstri, hljóðfærakaupum, viðhaldi á hljóðfærum o.þ.h. | ||||
| Tónstofa Valgerðar | 63.000– 100.000 |
63.000– 100.000 |
63.000– 100.000 |
63.000– 100.000 |
63.000– 100.000 |
| Athugasemdir: | Gefin eru upp skólagjöld á yfirstandandi skólaári, hafa ekki breyst í nokkur ár. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldin standa undir öllum rekstrarkostnaði við skólann að undanskildum launum kennara. | ||||
Tafla 2.
Framhaldsskólar.
| Einkaskólar á framhaldsskólastigi | Skólagjöld í kr. á hvern nemanda á ári |
||||
| 2010–11 | 2009–10 | 2008–09 | 2007–08 | 2006–07 | |
| Danslistarskóli JSB-listdansbraut | |||||
| Fornám, 7–9 ára | 69.000 | 69.000 | 69.000 | 69.000 | 59.000 |
| 1. áfangi, 1.–3. stig | 84.000 | 84.000 | 84.000 | 84.000 | 59.000 |
| 2. áfangi, 4.–7. stig | 96.400 | 96.400 | 96.400 | 96.400 | 94.500 |
| Framhaldsskólastig | 110.000 | 110.000 | 110.000 | 110.000 | 108.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöld koma til móts við styrki frá ríkinu vegna skólastarfsemi. Þjónusta við nemendur er fyrst og fremst í formi listdanskennslu en einnig stendur skólinn straum að öllum kostnaði vegna árlegra listdanssýninga í leikhúsi, búningakaupa o.fl. Gjöldin ganga upp í launakostnað vegna kennslu, launatengdra gjalda, húsnæðis- og rekstrarkostnað. | ||||
| Handverks- og hússtjórnarskólinn Hallormsstað | 230.000 | 164.000 | 164.000 | 164.000 | 164.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Sundurliðun 2011: Heimavistar- og tryggingargjald 20.000 kr., nemendafélagsgjöld 3.000 kr., efnisgjald í handavinnu 15.000 kr., námskeið, pappír, möppur o.fl. 25.000 kr., mötuneytisgjald 101.000 kr. | ||||
| Hraðbraut | 225.000 | 190.000 | 190.000 | 190.000 | 190.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Í reikningum Hraðbrautar er ekki sundurliðað hvað skólagjöldum er ætlað að standa undir, en skólinn veitir ýmsa þjónustu sem aðrir skólar veita ekki svo sem kennslu utan hefðbundinnar kennslu, aðstoð frá fjölda aðstoðarkennara til viðbótar við kennara skólans, starf yfirsetufólks til að tryggja góðan vinnufrið og aðhald á vinnudögum (þriðjudögum og fimmtudögum), lítt takmarkaðan aðgang að skólanum fram til 11 á kvöldin og um helgar, ótakmarkaðan aðgang að prenturum og pappír og ótakmarkaðan aðgang að síma skólans á skrifstofutíma. | ||||
| Heilsumeistaraskólinn | 27.900 | 27.250 | 28.650 | 27–34.000 | 27–34.000 |
| Athugasemdir: | Árið 2007 þegar skólinn var stofnaður í samvinnu við erlenda aðila voru greiðslur í erlendri mynt, dollurum. Á tímabilinu 2007–2008 með veikingu krónunnar riðlaðist rekstrargrundvöllurinn með þeim afleiðingum að skólinn hætti rekstri í samstarfi við erlenda aðila og stofnaður var íslenskur skóli þar sem allar greiðslur voru í ísl. kr. Nýi skólinn tók til starfa 1. febrúar 2009. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöld standa undir efniskostnaði sbr. eftirfarandi lista: námsgögn sem fylgja kennslulotum, kjarnaolíur, blómadropum, lífrænu grænmetisfæði í námslotum eftir því sem við á, lifandi fæði og fl. | ||||
| Hússtjórnarskólinn í Reykjavík | 357.625 | 354.710 | 312.979 | 268.539 | 254.998 |
| Athugasemdir: | Heimavistarnemendur greiða 50.000 kr. aukalega fyrir önnina. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöld þurfa að standa undir öllum efniskostnaði nemenda, fæði nemenda, námskeiðskostnað vegna utanaðkomandi kennara, bókakaupa o.fl. | ||||
| Keilir | |||||
| Háskólabrú staðnám: | |||||
| Félagsvísinda- og lagabraut | 435.000 | 435.000 | 435.000 | 435.000 | |
| Hugvísindabraut | 487.500 | 487.500 | 487.500 | 487.500 | |
| Viðskipta- og hagfræðibraut | 495.000 | 495.000 | 495.000 | 495.000 | |
| Verk- og raunvísindabraut | 585.000 | 585.000 | 585.000 | 585.000 | |
| Háskólabrú fjarnám: | |||||
| Félagsvísinda- og lagabraut | 570.000 | 570.000 | 741.000 | ||
| Hugvísindabraut | 660.000 | 660.000 | 832.000 | ||
| Viðskipta- og hagfræðibraut | 660.000 | 660.000 | 858.000 | ||
| Verk- og raunvísindabraut | 780.000 | 780.000 | 1.014.000 | ||
| Heilsuskóli: | |||||
| ÍAK einkaþjálfun | 585.000 | 545.000 | 545.000 | 495.000 | |
| Íþróttaþjálfarinn (Nýtt) | 240.000 | ||||
| – ef ÍAK einkaþjálfari | 220.000 | ||||
| Flugakademía: | |||||
| Flugumferðastjórar | 580.000 | ||||
| Flugþjónusta | 390.000 | ||||
| Atvinnuflug | 650.000 | ||||
| Einkaflug | 165.000 | ||||
| Orkutæknifræði og mekatrón: | |||||
| Orkutæknifræði og mekatrón | 250.000 | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Gjöldum má gróflega skipta í þrennt: innritunargjöld, námsgjöld og efnisgjöld. Undir þetta falla margir liðir svo sem: mat umsókna, viðtöl, kostnaður vegna tölvukerfa (nemendaskrár, fjarkennsla, netföng o.fl.), umsýsla vegna gjalda, skráning inn í kerfið, gerð greiðsluseðla, innheimta o.fl., kennslulaun, yfirsetulaun, prófakostnaður, kennslugögn, ljósritun kennslugagna, húsnæðiskostnaður, stjórnunarkostnaður, námsráðgjöf, starfsemi kennslusviðs, rekstur bókasafns, efnis- og tækjagjöld, leyfisgjöld, svo sem til Flugmálastjórnar, HÍ o.fl., ýmis stoðþjónusta svo sem símsvörun, afgreiðsla, fjölritun, tölvuþjónusta, ýmis aðkeypt þjónusta. | ||||
| Kvikmyndaskóli Íslands | 1.200.000 | 1.200.000 | 1.200.000 | 1.200.000 | 1.200.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Tekjur vegna skólagjalda eru ekki eyrnarmerktar í sérstaka þætti starfseminnar, heldur dreifast þær á alla rekstrarliði ásamt öðrum tekjum skólans. | ||||
| Klassíski listdansskólinn framhaldsdeild | 140.000 | 120.000 | 120.000 | 100.000 | 100.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldunum er ætlað að standa undir hluta rekstrarkostnaðar starfseminnar sem er danskennsla í húsakynnum skólans, auk hluta kostnaðar við sýningar og búninga. | ||||
| Listdansskóli Íslands/ Dansmennt ehf. | |||||
| 9 ára | 76.700 | 71.500 | 68.300 | 65.000 | 63.000 |
| 10–15 ára | 88.800 | 82.700 | 78.700 | 75.000 | 72.000 |
| Framhaldsstig | 111.000 | 103.500 | 98.700 | 94.000 | 90.000 |
| Athugasemdir: | Að beiðni þáverandi menntamálaráðherra tók Listaháskóli Íslands að sér rekstur Listdansskóla Íslands frá haustinu 2006. Dansmennt ehf. í eigu Listaháskólans sér alfarið um rekstur skólans. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöldin eru ekki eyrnamerkt sérstökum verkefnum, heldur fara þau í þá fjölbreyttu kennslu og þjónustu sem skólinn veitir nemendum sínum. | ||||
| Ljósmyndaskólinn | 1.200.000 | 1.100.000 | |||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Í skólagjöldum er innfalin kennsla, fyrirlestrar, námsefni, aðgangur að vinnuaðstöðu (myrkraherbergi, myndveri, tölvuveri og tækjabúnaði) rekstur myrkraherbergis og aðgangur að bókasafni. | ||||
| Menntaskóli Borgarfjarðar | 22.000 | 22.000 | 17.000 | 14.000 | |
| Athugasemdir: | Skólagjöld skiptast í innritunargjöld og tölvuumsjón. Skólaárið 2010–2011 voru innritunargjöld 14.000 kr. og tölvuumsjón 8.000 kr. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Innritunargjöldum er ætlað að standa undir umsýslu við innritun í skólann og tölvuumsjónargjald er tilkomið vegna nettengingar, netfangs, aðgangs að Innu og Námskjá. | ||||
| Myndlistaskólinn á Akureyri | |||||
| Fornám, myndlist, hönnun og arkitektúr | 245.000 | 195.000 | 140.000 | 125.000 | 110.000 |
| Grafísk hönnun, listhönnunardeild | 320.000 | 255.000 | 180.000 | 155.000 | 125.000 |
| Frjáls myndlist | 285.000 | 235.000 | 165.000 | 155.000 | 125.000 |
| Athugasemdir: | Nemendur í sérnámsdeildum skólans greiða staðfestingargjald 45.000 kr. | ||||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöld innihalda efniskostnað, allan pappír sem notaður er í vinnustofum, ljósritunarvél, prentara, blek, prentduft, sýrur og annað sem notað er á grafíkverkstæði, kaffi. | ||||
| Myndlistaskólinn í Reykjavík | |||||
| a. Fullt nám | 226.000 | 226.000 | 226.000 | 226.000 | 210.000 |
| b. Stakir áfangar | 24.960 | 24.960 | 24.960 | 24.960 | 22.870 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Framlag ráðuneytis til skólans er ekki reiknað með sama hætti og til annarra framhaldsskóla þó námið sé sniðið að lýsingu á listnámsbraut í aðalnámskrá. Skólinn tekur skólagjöld til að brúa þennan mun sem er á raunkostnaði og og framlagi ráðuneytis. Skv. a-lið er það kennsla 22 nemenda í undirbúningsnámi. Til samanburðar var námið sett inn í reiknilíkan ráðuneytis árið 2008. Samkvæmt því ætti framlag á nemenda að vera 1.031.000 kr. en er 914.000 kr. Þetta skýrir skólagjöldin að hluta. Einnig kom fram þegar nám skólans var sett inn í reiknilíkan að skólinn kennir nemendum stundum í fámennari hópum en reiknilíkanið gerir ráð fyrir og í stærra rými. Að hluta brúa skólagjöld einnig þennan mun. Skv. b-lið fær skólinn greiddar 12 millj. kr. til að standa fyrir myndlistarnámi fyrir almenning þar sem einnig er kennt samkvæmt aðalnámskrá. Á síðasta reikningsári kenndi skólinn um 600 nemendum sem hver tók að meðaltali 2,5 ein. Samkvæmt reiknilíkani er meðalverð einingar í listnámi 26.800 kr. Samkvæmt því ætti framlag vegna þessarar kennslu að vera 40.200.000. kr. Einnig gildir það sama um þessa kennslu og kennsluna í undirbúningsnáminu að nemendum er að jafnaði kennt í smærri hópum og í stærri aðstöðu. | ||||
| Snyrtiakademían/ Fótaaðgerðaskóli Íslands |
1.990.000 | 1.990.000 | 1.990.000 | 1.990.000 | 1.990.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Í báðum skólum er skólagjöldum ætlað að standa undir öllum rekstrarkostnaði þeirra. | ||||
| Snyrtiakademían/ Snyrtiskólinn |
1.680.000 | 1.680.000 | 1.680.000 | 1.680.000 | 1.680.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Í báðum skólum er skólagjöldum ætlað að standa undir öllum rekstrarkostnaði þeirra. | ||||
| Tækniskólinn – skóli atvinnulífsins |
|||||
| Byggingatækniskólinn byggingagreinar |
38.350 | 38.100 | 33.100 | ||
| Byggingatækniskólinn
tækniteiknun |
28.670 | 30.100 | 25.100 | ||
| Fjölmenningarskólinn –
fjölmenningarskólinn |
20.200 | 23.100 | 18.100 | ||
| Hársnyrtiskólinn –
hársnyrtideild |
38.350 | 38.100 | 33.100 | ||
| Hönnunar- og handv. -fataiðn | 28.670 | 30.100 | 25.100 | ||
| Hönnunar- og handv.- gull- og silfursmíði |
38.350 | 38.100 | 33.100 | ||
| Hönnunar- og handv. listnámsbraut | 28.670 | 30.100 | 25.100 | ||
| Raftækniskólinn | 38.350 | 38.100 | 33.100 | ||
| Skipstjórnarskólinn | 28.670 | 30.100 | 25.100 | ||
| Tæknimenntaskólinn | 20.200 | 23.100 | 18.100 | ||
| Upplýsingatækniskóli – margmiðlunarskóli | 38.350 | 38.100 | 33.100 | ||
| Upplýsingatækniskóli tölvubraut |
28.670 | 30.100 | 25.100 | ||
| Upplýsingatækniskóli upplýsinga- og fjölm. |
28.670 | 30.100 | 25.100 | ||
| Véltækniskólinn | 38.350 | 38.100 | 33.100 | ||
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Efnisgjöld, innritunargjöld og skólagjöld fyrir prentun, ljósritun og geymslu gagna | ||||
| Verzlunarskóli Íslands | 85.700 | 80.100 | 76.300 | 70.200 | 65.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Ein meginástæða skólagjaldanna er vegna kostnaðar við fasteignina sem skólinn er í. VÍ starfar samkvæmt skipulagsskrá sem gerð var fyrir Sjálfseignarstofnun Verslunarráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV). Sú stofnun starfrækir m.a. VÍ og er um húsnæðið að Ofanleiti 1. VÍ greiðir síðan húsaleigu til SVÍV. Húsaleigan dekkar afborganir og vexti af lánum sem tekin voru vegna byggingarframkvæmda svo og rekstrarkostnað við fasteignina. Á árinu 2010 borgaði skólinn samtals 163 millj. kr. í leigu, hún verður 174 millj. kr. á árinu 2011. Skólagjöldin hafa einnig gert skólanum kleift að bjóða upp á aðstöðu fyrir nemendur og starfsmenn eins og best gerist, svo sem góða aðstöðu og þjónustu við nemendur á bókasafni og góðan safnkost, vel útbúnar raungreinastofur o.fl. Skólinn endurnýjar allan tækjabúnað reglulega, tölvur o.fl., en í skólanum eru t.d. tvær tölvustofur og þrjú tölvuver sem nemendur hafa frjálsan aðgang að. Í skólagjöldum er innifalin prentkostnaður, hver nemandi fær prentkvóta sem nemur 300 blöðum á ári og þurfa ekki að borga fyrir rútur þegar farnar eru nemendaferðir. Nemendur fá ókeypis hafragraut á hverjum morgni o.fl. | ||||
Háskólar
|
Einkaskólar á háskólastigi |
Skólagjöld í kr. á hvern nemanda á ári. |
||||
| 2010–11 | 2009–10 | 2008–09 | 2007–08 | 2006–07 | |
| Háskólinn í Reykjavík | 308.000 | 308.000 | 294.000 | 266.000 | 410.000 |
| BA-stig | |||||
| MA-stig | 696.000 | 696.000 | 696.000 | 696.000 | 696.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöld Háskólans í Reykjavík eru nýtt fyrir eftirfarandi þætti: * Húsnæði og aðstöðu skólans fyrir nám og rannsóknir og þá bæði fyrir kennara og nemendur. * Betri kennslu og þjónustu við nemendur og þar með meiri skilvirkni og árangur í námi. * Öflugri rannsóknir. |
||||
| Listaháskóli Íslands | 343.000 | 320.000 | 285.000 | 255.000 | 225.000 |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Skólagjöld eru ekki eyrnamerkt sérstökum verkefnum eða þjónustu, heldur fara þau í þá fjölbreyttu þjónustu sem skólinn veitir nemendum sínum svo sem kennslu, fín- og grófverkstæði, sýningar, nemendaleikhús, tónleika og annað. | ||||
| Háskólinn á Bifröst | |||||
| Frumgreinadeild | 456.000 | 456.000 | 383.100 | 383.100 | |
| Fjarnám frumgreinadeild | 642.000 | 642.000 | 525.000 | 525.000 | |
| Staðnám, grunnnám | 516.000 | 516000 | 472500 | 472.500 | |
| Fjárnám, grunnnám | 714.000 | 714.000 | 648.000 | 648.000 | |
| Staðnám, meistaranám | 780.000 | 780.000 | 705.000 | 705.000 | |
| Fjarnám meistaranám | 810.000 | 810.000 | 705.000 | 705.000 | |
| Þjónusta sem skólagjöld eiga að standa undir: | Sérstaða háskólastarfs á Bifröst skapar kostnað sem fer töluvert fram yfir reiknað framlag ríkisins. Kostnaður við kennslu er þriðjungi hærri en kostnaður á sambærilegu sviði við HÍ, þjónusta við nemendur er meiri en við aðra skóla auk þess sem skólinn heldur úti meiri árlegri starfsemi en nokkur annar skóli á Íslandi. | ||||
4. Hver var áætluð heildarfjárhæð útlána Lánasjóðs íslenskra námsmanna til greiðslu skólagjalda sömu skólaár?
Sjá töflu 4.
Tafla 4 Skólagjaldalán í kr. innan lands 2006–2009
| Heiti skóla | 2009–2010 | 2008– 2009 | 2007– 2008 | 2006– 2007 |
| Viðurkenndir háskólar: |
||||
| Háskólinn á Bifröst | 196.333.699 | 248.168.411 | 237.344.420 | 237.381.190 |
| Háskólinn í Reykjavík | 517.971.775 | 481.691.858 | 365.523.735 | 279.763.722 |
| Listaháskóli Íslands | 62.186.000 | 59.557.112 | 47.663.125 | 41.708.131 |
| Samtals: | 776.491.474 | 789.417.381 | 650.531.280 | 558.853.043 |
| Viðurkenndir framhaldsskólar: |
||||
| Fjöltækniskóli Íslands | 610.000 | 1.165.000 | 1.835.000 | |
| Flugskóli Íslands* | 625.000 | 14.650.000 | 18.210.726 | 9.996.707 |
| Tækniskólinn | 15.942.500 | 9.462.500 | ||
| Snyrti-Akademían / Fótaaðgerðaskóli Íslands | 54.666.030 | 55.500.093 | 57.842.358 | 44.703.487 |
| Snyrtiskólinn | 4.167.500 | |||
| Keilir | 115.135.480 | 107.325.250 | 34.906.000 | |
| Kvikmyndaskóli Íslands | 141.945.640 | 113.747.172 | 67.381.132 | 29.193.514 |
| Myndlistaskólinn á Akureyri | 5.567.500 | 4.255.000 | 2.710.000 | 2.565.000 |
| Myndlistaskólinn í Reykjavík | 2.235.000 | 1.310.500 | 575.000 | |
| Samtals: | 336.117.150 | 306.860.515 | 182.790.216 | 92.461.208 |
| * Flugnám er viðurkennt af innanríkisráðuneyti | ||||
| Viðurkenndir tónlistarskólar: |
||||
| Nýi Tónlistarskólinn | 340.000 | |||
| Söngskóli Sigurðar Demetz | 466.800 | 705.500 | 975.000 | 495.000 |
| Söngskólinn í Reykjavík | 3.045.000 | 2.550.000 | 1.985.000 | 1.515.000 |
| Tónlistarskóli FÍH | 3.185.000 | 245.780 | 1.108.930 | 1.318.300 |
| Tónlistarskólinn í Reykjavík | 276.500 | 458.000 | ||
| Samtals: | 6.696.800 | 3.501.280 | 4.345.430 | 4.126.300 |
| ** Nám eftir framhaldspróf í tónlist er lánshæft hjá LÍN. | ||||
| Heildarsumma |
1.119.305.424 | 1.099.779.176 | 837.666.926 | 655.440.551 |