Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 849. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1549 — 849. mál.
um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og í Norður-Afríku.
Margrét Tryggvadóttir, Álfheiður Ingadóttir, Birgitta Jónsdóttir,
Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Þór Saari.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á framfæri á alþjóðavettvangi áhyggjum Íslands af þróun mála í ýmsum arabalöndum við Miðjarðarhaf og í Norður-Afríku. Ísland getur ekki, sem herlaust land og rödd friðar og mannréttinda á alþjóðavettvangi, stutt stríðsrekstur sem fer fram úr umboði Sameinuðu þjóðanna. Alþingi styður mannréttinda- og lýðræðisbaráttu í Túnis, Egyptalandi, Líbíu, Sýrlandi, Jemen, Sádi-Arabíu, Barein, Palestínu og víðar og felur ríkisstjórninni að tala máli friðsamlegra lausna í þeim átökum og deilum sem nú eiga sér stað í þessum heimshluta.
Þróun mála í ýmsum arabalöndum við Miðjarðarhaf og í Norður-Afríku veldur áhyggjum. Mikilvægt er að alþjóðasamfélagið beini sjónum sínum að og styðji við mannréttinda- og lýðræðisbaráttu hvarvetna sem hún fer fram. Ríki heims mega ekki meðhöndla almenning sem berst fyrir grundvallarmannréttindum með mismunandi hætti eftir því hvaða hagsmunir annarra ríkja eru í húfi.
Með samþykkt sinni nr. 1973 setti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna skýran ramma um aðgerðir á vegum alþjóðasamfélagsins í Líbíu til að vernda líf almennra borgara og að koma á flugbanni yfir Líbíu. Samþykkt nr. 1973 var þó ekki óumdeild. Loftárásir Atlantshafsbandalagsins í Líbíu, m.a. á borgaraleg skotmörk, hafa þegar kostað fjölmarga óbreytta borgara lífið. Alþingi hlýtur að hvetja til vopnahlés og friðarviðræðna í kjölfarið.
Með þingsályktunartillögu þessari er ríkisstjórninni falið að koma þessum sjónarmiðum á framfæri á alþjóðavettvangi, m.a. innan Sameinuðu þjóðanna og Atlantshafsbandalagsins.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1549 — 849. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og í Norður-Afríku.
Flm.: Árni Þór Sigurðsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Gunnar Bragi Sveinsson,
Margrét Tryggvadóttir, Álfheiður Ingadóttir, Birgitta Jónsdóttir,
Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Þór Saari.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á framfæri á alþjóðavettvangi áhyggjum Íslands af þróun mála í ýmsum arabalöndum við Miðjarðarhaf og í Norður-Afríku. Ísland getur ekki, sem herlaust land og rödd friðar og mannréttinda á alþjóðavettvangi, stutt stríðsrekstur sem fer fram úr umboði Sameinuðu þjóðanna. Alþingi styður mannréttinda- og lýðræðisbaráttu í Túnis, Egyptalandi, Líbíu, Sýrlandi, Jemen, Sádi-Arabíu, Barein, Palestínu og víðar og felur ríkisstjórninni að tala máli friðsamlegra lausna í þeim átökum og deilum sem nú eiga sér stað í þessum heimshluta.
Greinargerð.