Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 856. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1564  —  856. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um kostnað ríkissjóðs við fangaflutninga.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



     1.      Hver er heildarkostnaður ríkissjóðs við fangaflutninga innan lands sl. 10 ár, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hver er heildarkostnaður ríkissjóðs við fangaflutninga til annarra landa sl. 10 ár, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hvernig skiptist kostnaðurinn eftir tegundum flutninga, sundurliðað eftir flutningsleiðum?


Skriflegt svar óskast.