Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 630. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1573  —  630. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota, nr. 69/1995, með síðari breytingum.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur og Guðlaugu Jónasdóttur frá innanríkisráðuneyti. Umsögn barst frá Sálfræðingafélagi Íslands.
    Með frumvarpinu er lagt til að breyting verði gerð á bráðabirgðaákvæði laganna þannig að heimilt verði að víkja frá skilyrði ákvæðisins um að umsókn um bætur vegna tjóns sem leiða má af broti sem framið var fyrir 1. júlí 1996 skuli hafa borist bótanefnd fyrir 1. júlí 1997 ef veigamikil rök mæla með því.
    Frumvarpið er lagt fram til að bregðast við athugasemdum umboðsmanns Alþingis um að ekki væri jafnræði með þeim sem orðið hafa fyrir tjóni vegna brota sem fram voru 1. janúar 1993 til 30. júní 1996 og þeirra sem hafa orðið fyrir tjóni sem leiðir af broti sem framið er 1. júlí 1996 eða síðar.
    Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laganna er unnt að víkja frá skilyrðum um að tjón hafi án ástæðulauss dráttar verið kært og gerð krafa um greiðslu skaðabóta úr hendi brotamanns og að krafa hafi borist bótanefnd innan tveggja ára frá því að brot var framið ef brot er framið við gildistöku laganna 1. júlí 1996 eða síðar. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði laganna þarf umsókn um bætur vegna tjóns sem leiðir af broti sem framið er fyrir 1. júlí 1996 hins vegar að berast innan árs frá gildistöku laganna. Síðarnefndur frestur rann því út 1. júlí 1997 og ekki er heimilt að víkja frá því skilyrði samkvæmt lögunum.
    Nefndin telur nauðsynlegt að fullt jafnræði sé milli réttinda einstaklinga til greiðslu bóta sem falla undir gildissvið laganna hvenær sem brot hefur verið framið þannig að unnt sé að víkja frá skilyrðum laganna um fresti þegar veigamikil rök mæla með því.
    Nefndin leggur því til að frumvarpið verði samþykkt.

Alþingi, 30. maí 2011.



Róbert Marshall,


form., frsm.


Birgir Ármannsson.


Vigdís Hauksdóttir.



Mörður Árnason.


Þór Saari.