Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 867. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1594  —  867. mál.




Frumvarp til fjáraukalaga



fyrir árið 2011.

Flm.: Pétur H. Blöndal.



Skv. fjárl.
m.kr.

Breyting
m.kr.

Tillaga
m.kr.

Breyting á sundurliðun 2:
    Við 08-204 Lífeyristryggingar
     a.      1.11 Ellilífeyrir          8.410,0     2.088,0     10.498,0
     b.      1.15 Örorkulífeyrir          5.150,0     1.646,0     6.796,0
     c.      1.92 Álag á orlofs- og desemberuppbót          0,0     526,0     526,0
     d.      1.93 Prósentuhækkanir, aðrir bótaflokkar          0,0     174,0     174,0
     e.      Greitt úr ríkissjóði     23.401,0     4.434,0     27.835,0

Greinargerð.


    Hinn 20. maí sl. samþykkti Alþingi breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, sbr. lög nr. 51/2011. Með lögunum er ráðherra veitt heimild til hækkunar bóta almannatrygginga ef verulegar breytingar verða á launaþróun og þjóðhagsforsendum frá afgreiðslu fjárlaga. Til stendur að hækka bætur í samræmi við ákvæðið 1. júní þannig að lífeyrisþegar og atvinnuleitendur njóti hliðstæðra kjarabóta og um hefur verið samið í kjarasamningum aðila á vinnumarkaði. Áætluð breyting á útgjöldum almannatrygginga í kjölfar hækkunarinnar er 4.434 millj. kr. á yfirstandandi ári en þá fjárhæð er ekki að finna í fjárlögum. Er frumvarp þetta því lagt fram til að tryggja að heimild sé fyrir greiðslu þessara fjármuna úr ríkissjóði.