Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 789. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1601  —  789. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 97/2010, um stofnun hlutafélaga um vegaframkvæmdir.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Stefán Erlendsson frá Vegagerðinni.
    Með frumvarpinu er ætlunin að bæta skýrri eignarnámsheimild við lög um stofnun hlutafélaga um vegaframkvæmdir þannig að eytt sé öllum vafa um að félög skv. 1. og 2. gr. laganna geti staðið að lagningu Suðurlandsvegar frá Vesturlandsvegi austur fyrir Ölfusárbrú að nýjum gatnamótum á núverandi Suðurlandsvegi og lagningu Vesturlandsvegar frá Kollafirði að Hvalfjarðargöngum, lokið við Reykjanesbraut frá Kaldárselsvegi að Víknavegi, ásamt nauðsynlegum undirbúningi, og staðið að gerð jarðganga undir Vaðlaheiði ásamt vegalagningu að þeim auk annars nauðsynlegs undirbúnings.
    Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að óvissa ríki um það hvort eignarnámsheimild vegalaga sé fullnægjandi grundvöllur eignarnáms Vegagerðarinnar þegar slíkt eignarnám er gert í þágu framkvæmda á vegum hlutafélaga sem Vegagerðin hefur stofnað eða tekið þátt í að stofna.
    Á fundum nefndarinnar var málið rætt. Þar var m.a. bent á að veiting heimilda til eignarnáms vegna vegagerðar byggist á því að samfélagslegir hagsmunir krefjist þess að landeigendur verði skyldaðir til að láta af hendi land til þess að orðið geti af gerð vega, eins og kveðið er á um í 37. gr. vegalaga. Þeir hagsmunir geti verið staðbundnir að því gefnu að þeir teljist engu síður almennir. Var einnig vísað til þess að áskilið væri samkvæmt eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar að fullar bætur yrðu greiddar til þeirra sem fyrir eignaskerðingu verða vegna eignarnáms. Þá kom fram að eignarnámsheimild frumvarpsins væri hvað framsetningu varðar í efnislegu samræmi við margar eignarnámsheimildir gildandi laga.
    Nefndin bendir á að þær framkvæmdir sem vísað er til í 1. mgr. 1. gr. laganna eru allt framkvæmdir sem hafa um nokkurn tíma verið til umræðu í þjóðfélaginu. Er það mat nefndarinnar að slíkar framkvæmdir hafi í för með sér aukið umferðaröryggi, aukna hagkvæmni og skilvirkni samgangna, styttri ferðatíma, lægri flutningskostnað og jöfnun aðstöðu íbúa byggðarlaga. Þá muni slíkar framkvæmdir efla byggðir landsins og tengja saman aðskilin atvinnu- og þjónustusvæði.
    Nefndin telur rétt að tekinn sé af allur vafi um að eignarnám vegna framkvæmda samkvæmt lögum um stofnun hlutafélaga um vegaframkvæmdir geti átt sér stað til samræmis við ákvæði vegalaga.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Ólína Þorvarðardóttir, Mörður Árnason, Árni Johnsen og Guðmundur Steingrímsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 31. maí 2011.



Björn Valur Gíslason,


form., frsm.


Sigmundur Ernir Rúnarsson.


Jónína Rós Guðmundsdóttir.



Lilja Rafney Magnúsdóttir.


Ásbjörn Óttarsson,


með fyrirvara.