Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 771. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1618  —  771. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um kostnað við jöfnun raforkuverðs.

     1.      Hvað mundi kosta að niðurgreiða rafhitun til íbúðarhúsnæðis á köldum svæðum þannig að kostnaður yrði sambærilegur meðalhúshitunarkostnaði íbúðarhúsnæðis á veitusvæði:
         a.     Orkuveitu Reykjavíkur,
         b. þeirrar hitaveitu sem er dýrust?


    a. Samkvæmt lögum nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, er heimilt að niðurgreiða allt að 40.000 kWst/ári hjá hverjum notenda. Upphæð niðurgreiðslna er háð fjárveitingum hvers árs. Árið 2011 er gert ráð fyrir 1.045 millj. kr. til niðurgreiðslna vegna húshitunarkostnaðar á köldum svæðum.
    Samkvæmt útreikningum Orkustofnunar þyrfti rúmlega 1.080 millj. kr. til viðbótar til að niðurgreiða rafhitun á köldum svæðum þannig að kostnaður við húshitun yrði sambærilegur meðalhúshitunarkostnaði á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur.
    Heildarkostnaður yrði því um 2.127 millj. kr., sem er nálægt tvöföldun frá því sem nú er.

    b. Samkvæmt útreikningum Orkustofnunar þyrfti um 290 millj. kr. til viðbótar þeim 1.045 millj. kr. sem nú er varið til niðurgreiðslna á rafhitun á köldum svæðum þannig að kostnaður yrði sambærilegur meðalhúshitunarkostnaði íbúðarhúsnæðis á veitusvæði þeirrar hitaveitu sem er dýrust.
    Heildarkostnaður niðurgreiðslna miðað við dýrustu hitaveitu yrði því um 1.335 millj. kr.

     2.      Hvað mundi kosta að niðurgreiða dreifingu raforku í dreifbýli þannig að kostnaður notenda yrði sambærilegur við kostnað notenda á dýrasta þéttbýlissvæðinu?
    Á fjárlögum fyrir árið 2011 er gert ráð fyrir 245 millj. kr. til niðurgreiðslna á dreifingu raforku í dreifbýli. Samkvæmt útreikningum Orkustofnunar þyrfti um 682 millj. kr. til viðbótar þeirri upphæð svo kostnaður notenda í dreifbýli yrði sambærilegur við kostnað notenda á dýrasta þéttbýlissvæðinu.
    Heildarkostnaður við að niðurgreiða dreifingu raforku í dreifbýli þannig að kostnaður notenda verði sambærilegur við kostnað notenda á dýrasta þéttbýlissvæðinu yrði því 927 millj. kr.