Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 812. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1632  —  812. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um verktakasamninga.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu margir eru starfandi á verktakasamningum í ráðuneytinu?

     Fjöldi verktaka     Lýsing verks
                   2                Sérfræðiráðgjöf við mótun efnahagsáætlunar o.fl.
                   6                Sérfræðiaðstoð vegna svars íslenskra stjórnvalda til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna tilskipunar um innstæðutryggingar.
                   3                Sérfræðiaðstoð vegna samningar lagafrumvarpa og greinargerða.
                   2                Þýðingarþjónusta.

    Við vinnslu svarsins var miðað við samninga við sérfræðinga sem starfa fyrir ráðuneytið við smíði frumvarpa, skýrslna og greinargerða og við greiningu og ráðgjöf eða aðra sérfræðivinnu á vegum ráðuneytisins. Svarið nær til þeirra sem sinna slíkum verkefnum á grundvelli sérstaks verktakasamnings, innan rammasamnings ríkisins eða samkvæmt samkomulagi við ráðuneytið þegar svarið er unnið, þ.e. í maímánuði 2011.