Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 632. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1680  —  632. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um lækkun vörugjalda af ökutækjum sem breytt hefur verið til þess að nýta metan.

     1.      Hvaða ástæður liggja að baki mismun í meðferð vörugjalda, samkvæmt lögum nr. 29/1993, um vörugjöld, eins og þeim var breytt um síðustu áramót, af nýjum og ónotuðum bifreiðum sem breytt hefur verið þannig að þær nota metan í stað bensíns eða dísilolíu annars vegar og hins vegar meðferð vörugjalda af notuðum bifreiðum sem breytt hefur verið á sama hátt?
    Í því frumvarpi sem fjármálaráðherra lagði fram um heildarendurskoðun á skattlagningu ökutækja og eldsneytis, sjá 197. mál á þskj. 214, var ekki lagt til að vörugjald af nýjum og ónotuðum bifreiðum sem breytt er til þess að nýta metan í stað bensíns eða dísilolíu fyrir nýskráningu en án gerðarviðurkenningar yrði fellt niður. Umrætt ákvæði í 3. mgr. 8. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., var lagt til í breytingartillögu meiri hluta efnahags- og skattanefndar, sjá þskj. 579. Ráðuneytið hefur því ekki upplýsingar um það hvaða ástæður liggja að baki þeim mismun í meðferð vörugjalda sem vísað er til.

     2.      Hver er rökstuðningur að baki ákvörðun um 1.250.000 kr. hámarksniðurfellingu vörugjalda af nýju og ónotuðu ökutæki ef því er breytt fyrir nýskráningu svo það nýti metan í stað bensíns?
    Í frumvarpi fjármálaráðherra, sem vísað er til í svari við fyrstu spurningunni, var lagt til að hámarksniðurfelling vörugjalda af ökutækjum sem nýta metan að verulegu leyti yrði 750.000 kr. Við ákvörðun um að leggja til þá fjárhæð var tekið mið af meðalgreiðslu vörugjalda af almennum fólksbifreiðum án óhóflegs aukabúnaðar. Rétt þótti að þak yrði sett á niðurfellingarheimild vegna gerðarviðurkenndra metanbifreiða til þess að komast hjá misnotkun. Að öðru leyti er vísað til svars við fyrstu spurningunni.

     3.      Hvers vegna er endurgreiðsla vegna breytinga á bifreið til að nýta metan bundin við 20% af kostnaði við breytinguna og hvers vegna er sú heimild bundin við 1.000 bifreiðar?
    
Í bráðabirgðaákvæði XIII við lög nr. 29/1993, um vörugjöld af ökutækjum, eldsneyti o.fl., felst stórt skref til aukinnar metanvæðingar bílaflotans og þar með orkuskipta í samgöngum. Í ljósi þess að miklum fjármunum er varið til verkefnisins þótti rétt að nýta þær fjárheimildir með sem skilvirkustum hætti. Var þetta gert t.d. með því að einskorða endurgreiðsluna við þau ökutæki sem eru 6 ára og yngri, kveða á um lágmarksstærð á metangeymi bifreiðar og kveða á um hámark hverrar endurgreiðslu. Með þessu er leitast við að ökutækin geti á líftíma sínum ekið lengur á metani og lengra á hverri áfyllingu en skapa á sama tíma nægjanlega mikinn hvata til þess að skipta úr hefðbundnu jarðefnaeldsneyti yfir í metan. Þegar 1.000 bifreiðum hefur verið breytt eru þeir fjármunir sem varið er til þessa verkefnis uppurnir.


     4.      Í hversu mörgum tilfellum hafa vörugjöld verið lækkuð vegna breytinga á nýjum eða ónotuðum bifreiðum skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 29/1993 frá 1. janúar 2011?
    Frá 1. janúar til 24. maí 2011 hafa vörugjöld af 14 nýjum og ónotuðum ökutækjum verið felld niður á grundvelli þess að þeim hefur verið breytt til þess að nýta metan fyrir nýskráningu.

     5.      Hversu margir hafa nýtt sér heimild í ákvæði til bráðabirgða XIII við lögin til endurgreiðslu hluta af kostnaði við breytingu bifreiða frá 1. janúar 2011?
    Frá 1. janúar til 24. maí 2011 hafa vörugjöld af 89 ökutækjum verið endurgreidd á grundvelli tilvitnaðrar heimildar.

     6.      Hversu margir hér á landi bjóða þjónustu við breytingar á bifreiðum til nýtingar á metani fremur en bensíni eða dísilolíu og hver er meðalkostnaður við slíka breytingu?
    Umferðarstofa hefur viðurkennt sjö aðila sem ísetningaraðila metanbúnaðar og ein umsókn bíður afgreiðslu. Hægt er að nálgast upplýsingar um þá sem Umferðarstofa hefur samþykkt á vefnum www.us.is undir hnappnum Upplýsingatorg. Við undirbúning ákvæðis til bráðabirgða XIII við lög nr. 29/1993, um vörugjöld af ökutækjum, eldsneyti o.fl., aflaði ráðuneytið upplýsinga um kostnað við breytingu á ökutæki úr því að nýta bensín yfir í að nýta metan að verulegu leyti. Samkvæmt þeim upplýsingum er kostnaður allt frá 400.000 kr. að 700.000 kr. og jafnvel hærri, allt eftir búnaði og vélarstærð ökutækja og þeim búnaði sem settur er í ökutækið.