Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 841. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1683 — 841. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um áfallna skatta í vanskilum.
1. Hversu miklir áfallnir skattar voru í vanskilum í lok mars á þessu ári?
Í lok mars 2011 nam heildarfjárhæð áfallinna skatta í vanskilum samtals 127,1 milljarði kr.
2. Hvernig skiptist fjárhæðin eftir tegund skatts og lengd vanskila?
Heildarfjárhæðin, sbr. svar við 1. tölul., skiptist í grófum dráttum sem hér segir:
Upplýsingar um lengd vanskila liggja ekki fyrir.
3. Hversu miklir áfallnir ógreiddir skattar hafa verið afskrifaðir á síðastliðnum tveimur árum?
Á árinu 2009 námu afskriftir áfallinna skatta samtals 9,9 milljörðum kr. og 9,4 milljörðum kr. á árinu 2010, eða samtals 19,3 milljörðum kr. á síðustu tveimur árum. Þar af námu afskriftir á tekjuskatti einstaklinga 4,5 milljörðum kr., tekjuskatti lögaðila 4,4 milljörðum kr., virðisaukaskatti 8,8 milljörðum kr., tryggingagjaldi réttum 1 milljarði kr. og öðrum sköttum 0,6 milljörðum kr.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1683 — 841. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um áfallna skatta í vanskilum.
1. Hversu miklir áfallnir skattar voru í vanskilum í lok mars á þessu ári?
Í lok mars 2011 nam heildarfjárhæð áfallinna skatta í vanskilum samtals 127,1 milljarði kr.
2. Hvernig skiptist fjárhæðin eftir tegund skatts og lengd vanskila?
Heildarfjárhæðin, sbr. svar við 1. tölul., skiptist í grófum dráttum sem hér segir:
| Mia | % | |
| 1. Tekjuskattur einstaklinga | 26,3 | 20,7 |
| 2. Tekjuskattur lögaðila | 38,5 | 30,3 |
| 3. Virðisaukaskattur | 45,2 | 35,6 |
| 4. Tryggingagjöld | 7,0 | 5,5 |
| 5. Vörugjöld | 1,7 | 1,3 |
| 6. Ýmsir skattar | 8,4 | 6,6 |
| Samtals | 127,1 | 100,0 |