Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 633. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1684 — 633. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um stofnfjáreign ríkisins í sparisjóðum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver var aðdragandi þess að ríkið eignaðist meiri hluta stofnfjár í fimm sparisjóðum? Óskað er eftir upplýsingum um einstaka sparisjóði.
Vinna við fjárhagslega endurskipulagningu minni sparisjóða hófst á vormánuðum 2009 og byggðist í upphafi á þeim grunni sem lagður var í 2. gr. laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., oft nefnd neyðarlög. Í lögunum er að finna heimild til handa fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að leggja sparisjóðum til stofnfé sem nemur allt að 20% af bókfærðu eigin fé þeirra.
Heimild ríkissjóðs til að leggja sparisjóðum til eiginfjárframlag var nánar útfærð í reglum útgefnum af settum fjármálaráðherra 18. desember 2008: „Reglur um framlag til sparisjóða skv. 2. gr. laga nr. 125/2008 um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl.“, hér eftir nefndar reglur um stofnfjárframlag. Á grundvelli reglnanna sóttu nokkrir sparisjóðir um stofnfjárframlag úr ríkissjóði á fyrri hluta árs 2009. 1
Í tilefni af áformum einstakra sparisjóða um fjárhagslega endurskipulagningu var farið fram á það af hálfu fjármálaráðuneytisins að þeir sparisjóðir sem sóttu um stofnfjárframlag fengju óháð endurskoðunarfélag til þess að fara yfir reikninga þeirra og verðmæti eigna. Var endurskoðunarfélagið PricewaterhouseCoopers hf. (PWC) fengið til verksins. Þegar á leið reyndist staða sparisjóðanna verri en áður var talið og því mundi framlag skv. 2. gr. neyðarlaga ekki duga til að endurreisa þá fjárhagslega. Sparisjóðirnir þurftu því á aðkomu kröfuhafa að halda til að fjárhagsleg endurskipulagning væri möguleg.
Seðlabanki Íslands var helsti kröfuhafi sparisjóðanna. Ástæðan fyrir því er sú að Seðlabankinn hafði fengið kröfur Sparisjóðabanka Íslands hf. á hendur sparisjóðum framseldar sem endurgjald fyrir yfirteknar innstæður í Sparisjóðabankanum. 2 Í ljósi þessa tóku Seðlabanki Íslands og fjármálaráðuneytið upp nánari samvinnu um fjárhagslega endurskipulagningu sparisjóða og skyldi Seðlabankinn leiða vinnuna sem kröfuhafi. Afrakstur þessarar vinnu var kynntur sparisjóðunum með bréfi Seðlabanka Íslands dags. 1. febrúar 2010 þar sem sparisjóðunum var boðið að semja um uppgjör á skuldum sínum við Seðlabankann með þeim skilmálum og skilyrðum sem kynnt voru í bréfinu.
Einn þeirra möguleika sem sparisjóðunum var boðið upp á við uppgjör á skuldum sínum við Seðlabanka Íslands var að breyta hluta þeirra í stofnfé. Um slíka breytingu giltu áðurnefndar reglur fjármálaráðuneytisins um stofnfjárframlag frá 18. desember 2008. Í bréfi Seðlabankans til sparisjóða voru þeim enn fremur kynntar fyrirætlanir um að stofnfjárbréfin yrðu yfirtekin af ríkissjóði sem fæli Bankasýslu ríkisins að fara með eignarhald þeirra.
Með bréfi fjármálaráðuneytisins, dags. 20. apríl 2010, voru eftirlitsstofnun EFTA (e. EFTA Surveillance Authority – ESA) kynnt áform ríkisins og Seðlabanka Íslands um fjárhagslega endurskipulagningu sparisjóða. Í kjölfarið veittu Seðlabankinn og fjármálaráðuneytið ESA viðbótarupplýsingar og svöruðu fyrirspurnum stofnunarinnar varðandi endurskipulagningu sparisjóðanna. ESA samþykkti loks endurskipulagningaráform ríkisins og Seðlabankans með bréfi dags. 21. júní 2010.
16. júní 2010 kvað Hæstiréttur Íslands upp tvo dóma varðandi lögmæti lánsskuldbindinga í íslenskum krónum tengdra gengi erlendra gjaldmiðla. Niðurstaða réttarins var á þá leið að gengistrygging slíkra lána væri óskuldbindandi en tók ekki afstöðu til þess hvaða vexti lánin skyldu bera. Af þessu var ljóst að bókfært virði útlánasafna sparisjóðanna kynni að lækka þegar lánin yrðu endurreiknuð með tilliti til niðurstöðu Hæstaréttar.
30. júní 2010 sendu Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands fjármálafyrirtækjum tilmæli vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða í lánssamningum fjármálafyrirtækja. Í kjölfarið könnuðu forsvarsmenn og endurskoðendur sparisjóðanna, í samráði við Fjármálaeftirlitið, áhrif dómanna miðað við forsendur um vaxtakjör sem gefnar voru í áðurnefndum tilmælum eftirlitsstofnana. Eftir að niðurstaða þeirra athugana lá fyrir var gengið frá samningum við einstaka sparisjóði:
Sparisjóður Norðfjarðar.
Lokið var við fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Norðfjarðar 28. júní 2010 með undirritun samkomulags við Seðlabanka Íslands.
Stofnfé sjóðsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu var 625,8 millj. kr. og var fjöldi stofnfjáraðila 86. Heildareignir sjóðsins voru 5.377 millj. kr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins var 22%.
Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkissjóðs í sparisjóðnum sem myndaðist við fjárhagslega endurskipulagningu auk þess sem hlutur Byggðastofnunar var færður yfir til Bankasýslunnar og fer hún því með 49,5% af stofnfé sjóðsins.
Tveir af fimm stjórnarmönnum eru skipaðir af Bankasýslu ríkisins
Sparisjóður Bolungarvíkur.
Lokið var við fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Bolungarvíkur 22. september 2010 með undirritun samkomulags við Seðlabanka Íslands.
Stofnfé sparisjóðsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu var 688,2 millj. kr. og var fjöldi stofnfjáraðila 259. Heildareignir sjóðsins voru 5.144 millj. kr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins var um 18% og bókfært eigið fé 564,3 millj. kr.
Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkisins í sparisjóðnum sem myndaðist við fjárhagslega endurskipulagningu auk þess sem hlutur Byggðastofnunar var færður yfir til Bankasýslunnar og fer hún því með 90,9% af stofnfé sjóðsins.
Fjórir af fimm stjórnarmönnum eru skipaðir af Bankasýslu ríkisins.
Sparisjóður Svarfdæla.
Lokið var við fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Svarfdæla 21. desember 2010 með undirritun samkomulags við Seðlabanka Íslands.
Stofnfé sparisjóðsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu er 424,4 millj. kr. og er fjöldi stofnfjáraðila 152. Heildareignir sjóðsins eru 3.834 millj. kr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins var 16,3%.
Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkisins í sparisjóðnum sem myndaðist við fjárhagslega endurskipulagningu og fer hún með 90% af stofnfé sjóðsins.
Sparisjóður Vestmannaeyja.
Lokið var við fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Vestmannaeyja 10. desember 2010 með undirritun samkomulags við Seðlabanka Íslands.
Stofnfé sparisjóðsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu var 1.004,5 millj. kr. og var fjöldi stofnfjáraðila 85. Heildareignir sjóðsins voru 14.716 millj. kr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins var um 16,8%.
Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkisins í sparisjóðnum sem myndaðist við fjárhagslega endurskipulagningu og fer hún með 55,3% af stofnfé sjóðsins.
Þrír af fimm stjórnarmönnum eru skipaðir af Bankasýslu ríkisins.
Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis.
Lokið var við fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis 21. desember 2010 með undirritun samkomulags við Seðlabanka Íslands.
Stofnfé sparisjóðsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu er 258,2 millj. kr. og er fjöldi stofnfjáraðila 92. Heildareignir sjóðsins eru 2.669,1 millj. kr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins er 16% og bókfært eigið fé 304,2 millj. kr.
Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkisins í sparisjóðnum sem myndaðist við fjárhagslega endurskipulagningu auk þess sem hlutur Byggðastofnunar var færður yfir til Bankasýslunnar og fer hún því með 75,9% af stofnfé sjóðsins.
Fjórir af fimm stjórnarmönnum eru skipaðir af Bankasýslu ríkisins
Af þessu má sjá að ríkissjóður á meiri hluta í fjórum af fimm sparisjóðum þar sem hann á stofnfé og í þremur þeirra aukinn meiri hluta sem nægir til að breyta samþykktum sjóðsins.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1684 — 633. mál.
Svar

- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Reglurnar kveða á um að stofnfjárframlag geti að hámarki numið 20% af bókfærðu eigin fé viðkomandi sparisjóðs miðað við samþykktan ársreikning 31. desember 2007.
- Neðanmálsgrein: 2
-
2
Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um ráðstöfun eigna og skulda Sparisjóðabanka Íslands hf., dags. 21. mars 2009.