Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 759. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1685 — 759. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Bjarna Benediktssonar um greiðslu virðisaukaskatts.
1. Hversu há fjárhæð var greidd í virðisaukaskatt til ríkissjóðs árin 2009 og 2010 á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 3. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, þar sem segir: „Aðilar, sem hafa með höndum starfsemi sem fellur undir 3. og 5. mgr. 2. gr., skulu greiða virðisaukaskatt af skattskyldum vörum og þjónustu þegar vara er framleidd eða þjónusta innt af hendi eingöngu til eigin nota og í samkeppni við skattskylda aðila skv. 1. mgr.“?
Upplýsingar um virðisaukaskatt af starfsemi þeirra aðila sem undanþegnir eru skattskyldu nema til eigin nota og í samkeppni við skattskylda aðila eru ekki tilgreindar sérstaklega í virðisaukaskattsskýrslu og liggja því miður ekki fyrir. Til eru upplýsingar um skattskylda aðila sem skráðir eru í tiltekna atvinnugrein sem falla undir undanþegna starfsemi skv. 3. og 5. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt en þar eru þó einnig þeir aðilar, innan þessara atvinnugreina, sem eru virðisaukaskattsskyldir. Þá getur einn og sami aðilinn boðið upp á mismunandi þjónustu sem er annars vegar virðisaukaskattsskyld og hins vegar ekki og því ekki hægt að greina fyrir hvaða hluta starfseminnar virðisaukaskattur er greiddur. Í athugun er að endurskoða lög um virðisaukaskatt og framkvæmd þeirra, meðal annars til þess að auðvelda yfirlit yfir starfsemi af þeim toga sem spurt er um.
2. Hvaða aðilar greiddu virðisaukaskatt á grundvelli framangreinds ákvæðis?
Sjá svar við 1. spurningu.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1685 — 759. mál.
Svar