Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 842. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1705  —  842. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um lyfjakostnað eldri borgara.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu mikið hefur lyfjakostnaður eldri borgara (67 ára og eldri) vegna lyfseðilsskyldra lyfja breyst frá árinu 2006 fram að nýjasta fáanlega mati?

    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda eldri borgara (67 ára og eldri) sem þurfti að greiða fyrir lyf sem ávísað var með lyfseðli árin 2006–2010 og meðalgreiðslu á mann á ári. Tekið skal fram að ekki er tekið tillit til afsláttar sem apótek kunna að veita frá verði samkvæmt lyfjaverðskrá.

Ár Fjöldi sem greiddi fyrir lyf gegn lyfseðli Meðalgreiðsla á ári í kr.
2006 29.085 22.456
2007 29.376 22.969
2008 29.994 25.002
2009 30.640 31.211
2010 31.493 35.107

    Yfir 90% eldri borgara þurfa að greiða fyrir lyf en tiltekinn hluti greiðir ekkert (þeir sem liggja á spítala eða á hjúkrunarheimilum þurfa til dæmis ekki að greiða).
    Sé aðeins miðað við þá sem greiða fyrir lyf var meðalgreiðsla á mann 22.456 kr. árið 2006 samanborið við 35.107 kr. árið 2010 og hefur því hækkað um rúmlega 56%. Það er mun minni hækkun en hækkun lyfjaverðskrárgengis sem var 106% á sama tíma.
    Ástæða hækkunar á lyfjakostnaði eldri borgara er fyrst og fremst gengisfall krónunnar en heildsöluverð langflestra lyfja er skráð í erlendri mynt og fylgir því gengisbreytingum nánast að fullu. Þannig kostaði evran 75 kr. í upphafi tímabilsins en 155 kr. í lok þess (miðað við lyfjaverðskrárgengi) sem er 106% hækkun. Hækkun á greiðslum vegna 0-merktra lyfja er 97%, heldur minni en sem nemur gengisbreytingum vegna þess að nokkur lyf eru skráð í íslenskum krónum og hluti álagningar er föst krónutala og fylgir því ekki gengisbreytingum.
    Hafa ber í huga að lyfjanotkun aldraðra getur eins og notkun annarra einstaklinga verið breytileg vegna nýrra lyfja, meiri eða minni notkunar o.s.frv. Þá þarf að hafa í huga hugsanlega meiri notkun lyfja vegna fjölgunar í elsta aldurshópnum á tímabilinu, sem og að 44% lyfjaútgjalda eldri borgara eru vegna svokallaðra 0-merktra lyfja sem notendur greiða að fullu sjálfir. Lyfjakostnaður eldri borgara vegna slíkra lyfja hefur hækkað um 97% á tímabilinu en kostnaður eldri borgara vegna lyfja sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða hefur hækkað um 35% á sama tíma og kostnaður sjúkratrygginga vegna lyfja hefur hækkað um 43%.
    Lyfjakostnaður eldri borgara vegna þeirra lyfja sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða hefur ekki hækkað til jafns við gengisbreytingar eða kostnað sjúkratrygginga vegna þess að sjúkratryggingar greiða verð lyfjaávísunar umfram ákveðna fasta krónutölu. Að því leyti dempar greiðsluþátttökukerfið höggið vegna gengis- og verðlagsbreytinga. Í tilfelli 0-merktu lyfjanna leggjast gengis- og verðlagsbreytingar aftur á móti á notendur af meiri þunga.