Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 828. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1729  —  828. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 10. júní.)



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða í lögunum:
     a.      Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 1. mgr.:
                  a.      Í stað orðanna „fardaga 2012“ kemur: ársloka 2014.
                  b.      Á eftir orðunum „öskufalls eða jökulflóða“ kemur: eða vegna þess að afurðasala frá lögbýlinu hefur verið bönnuð af ástæðum sem hlutaðeigandi framleiðandi gat ekki haft áhrif á.
     b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Nú hefur framleiðandi fengið greiddar bætur vegna tjóns sem hann á jafnframt rétt á að fá bætt með beingreiðslum samkvæmt þessu ákvæði og er þá heimilt að lækka beingreiðslurnar sem bótunum nemur. Jafnframt er ráðherra heimilt að áskilja að bætur sem framleiðandi kann að eiga rétt á síðar vegna tjónsins renni í ríkissjóð.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða X í lögunum:
     a.      Í stað orðanna „2010, 2011 og 2012“ í 1. mgr. kemur: 2011, 2012, 2013 og 2014.
     b.      Við 1. mgr. bætist: eða vegna þess að afurðasala frá lögbýlinu hefur verið bönnuð af ástæðum sem hlutaðeigandi framleiðandi gat ekki haft áhrif á.
     c.      Í stað orðanna „2010, 2011 og 2012“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 2010, 2011, 2012, 2013 og 2014.
     d.      Í stað ártalanna „2007–2009“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 2007–2010.
     e.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Heimilt er að binda ákvörðun um fyrirgreiðslu skv. 1. eða 2. mgr. skilyrði um að bætur sem framleiðandi kann að eiga rétt á frá þriðja aðila renni sem fyrirgreiðslunni nemur í ríkissjóð.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.