Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 745. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1736 — 745. mál.
velferðarráðherra við fyrirspurn Þorgerðar K. Gunnarsdóttur um málefni fatlaðra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvað hefur verið gert í málefnum fatlaðra eftir að þau fluttust yfir til sveitarfélaga 1. janúar sl.?
Endurskoðuð lög um málefni fatlaðs fólks voru samþykkt á Alþingi í desember 2010 og tóku gildi 1. janúar 2011 samtímis því að ábyrgð á framkvæmd þjónustu við fatlað fólk fluttist til sveitarfélaganna.
Velferðarráðuneytið hefur átt náið samstarf við Samband íslenskra sveitarfélaga um framkvæmdina á yfirfærslunni. Mikil sameiginleg vinna hefur verið lögð í það að útfæra þann ramma sem skapaður var með breytingum á lögum í desember síðastliðnum. Þá hafa fulltrúar Reykjavíkurborgar og annarra helstu þjónustusvæða tekið virkan þátt í að móta verklag um ýmsa þætti innan málaflokksins í samráði við hagsmunasamtök notenda.
Við yfirfærsluna er eðlilega horft til þeirra sveitarfélaga og svæða sem hafa haft með höndum þjónustu við fatlað fólk á umliðnum árum. Þróunin á framkvæmd þessara sveitarfélaga og sá árangur sem þau hafa náð í samþættingu þjónustu til hagsbóta fyrir notendur hefur mikið að segja þegar kemur að því að móta fyrirmyndir fyrir önnur sveitarfélög og svæði. Líta má svo á að þar sem vel hefur tekist til hafi orðið til fyrirmyndir sem nota má til eftirbreytni. Velferðarráðuneytið og fulltrúar sveitarfélaga hafa farið yfir þessi dæmi og lagt þau til grundvallar við gerð leiðbeininga um inntak þeirra reglna sveitarfélaga sem lög mæla fyrir um að þau skuli setja sér.
Í nýsamþykktum lögum var meðal annars kveðið á um fimmtán atriði sem velferðarráðuneytið ber ábyrgð á og þurfa að koma til framkvæmda. Hér á eftir er gerð grein fyrir þessum ákvæðum og hvernig staða þeirra er um þessar mundir.
1. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að unnið verði að því að undirbúa fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Sú vinna er hafin í ráðuneytinu og hefur einnig verið óskað eftir þátttöku fjögurra annarra ráðuneyta í þessu verkefni, þ.e. forsætis-, innanríkis-, mennta- og menningarmála- og umhverfisráðuneytis.
2. Í öðru lagi er velferðarráðherra falið að leggja eigi síðar en 1. október 2011 tillögu fyrir Alþingi til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks. Þar skal setja fram stefnu í málefnum fatlaðs fólks, skýra forgangsröðun verkefna, markvissa aðgerðaáætlun og skilgreinda árangursmælikvarða.
Verið er að skipa starfshóp um þetta verkefni og hefur verið óskað tilnefninga frá heildarsamtökum fatlaðs fólks og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
3. Í þriðja lagi er ráðherra falið eftirlit með framkvæmd laganna, þar á meðal að þjónusta, starfsemi og rekstur sveitarfélaga og annarra aðila samkvæmt lögunum sé í samræmi við markmið laganna, reglugerða og reglna settra samkvæmt þeim og að réttindi fatlaðs fólks séu virt. Markmið eftirlitsins er að safna og miðla upplýsingum til að tryggja sambærilega þjónustu við fatlaða einstaklinga í ljósi ólíkra þarfa. Í ráðuneytinu er hafin vinna við að setja gæðastaðla og undirbyggja tölfræðiupplýsingar svo unnt verði að setja reglur um eftirlitið.
4. Í lögunum er kveðið á um að landinu sé skipt í þjónustusvæði þannig að á hverju svæði séu að lágmarki 8.000 íbúar. Ráðherra er þó heimilt að veita undanþágu frá íbúafjölda á grundvelli landfræðilegra aðstæðna, enda hafi viðkomandi sveitarfélag eða sveitarfélög sýnt fram á getu til að veita þjónustu í samræmi við ákvæði laganna. Fjórar umsóknir bárust um undanþágur sem hafa verið samþykktar og er því þessu verkefni lokið.
5. Þá er í lögunum kveðið á um skyldur ráðherra til að setja nánari reglur í reglugerð um starfsleyfi sem sveitarfélagi eða sveitarfélögum sem standa saman að þjónustusvæði er heimilt að veita félagasamtökum, sjálfseignarstofnunum eða öðrum einkaaðilum sem vilja hefja eða taka við rekstri þjónustustofnunar eða húsnæðisúrræðis á þjónustusvæði þeirra.
Vinna er hafin í ráðuneytinu við gerð reglugerðarinnar í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga eins og kveðið er á um í lögunum.
6. Einnig er kveðið á um að sett verði reglugerð um húsnæði og þjónustu á heimili fatlaðs fólks og er þeirri vinnu lokið. Reglugerð þess efnis tók gildi á sama tíma og lögin eða 1. janúar 2011.
7.–9. Samkvæmt þremur greinum laganna er ráðherra heimilt að setja leiðbeinandi reglur, þ.e. þar sem kveðið er á um þjónustu vegna stuðningsfjölskyldna fyrir fjölskyldur fatlaðra barna, styrki til tækjakaupa og námskostnaðar fyrir fatlað fólk og ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk. Er sú vinna langt komin í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga.
10.–11. Samkvæmt lögunum skal ráðherra skipa trúnaðarmenn að fengnum tillögum heildarsamtaka fatlaðs fólks í því skyni að treysta réttindi fatlaðra einstaklinga. Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um trúnaðarmenn fatlaðs fólks, svo sem um fjölda þeirra.
Reglugerð um trúnaðarmenn hefur verið sett og tók hún gildi 22. febrúar 2011. Þá hefur ráðherra skipað átta trúnaðarmenn um allt land frá og með 1. maí síðastliðnum.
12. Í ákvæði til bráðabirgða í lögunum er kveðið á um að komið skuli á sérstöku samstarfsverkefni ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka fatlaðs fólks um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Markmið þess er að þróa leiðir til að taka upp notendastýrða persónulega aðstoð við fatlað fólk með markvissum og árangursríkum hætti.
Ráðherra hefur skipað sjö manna verkefnisstjórn til að leiða samstarfsverkefnið sem skal standa til ársloka 2014. Eigi síðar en þá skal ráðherra leggja fram frumvarp þar sem lagt verður til að lögfest verði að notendastýrð persónuleg aðstoð verði eitt meginform þjónustu við fatlað fólk.
13. Í greinargerð með lögunum og í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um tilfærslu þjónustu við fatlað fólk er kveðið á um skipun starfshóps um framtíðarskipulag atvinnumála fatlaðs fólks. Um þessar mundir er ráðuneytið að ganga frá skipun starfshópsins.
14. Ráðherra hefur nú þegar skipað átta manna samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks eins og kveðið er á um í ákvæði til bráðabirgða í lögunum. Samráðshópurinn hefur tekið til starfa og fundar reglulega. Nefndin verður velferðarráðherra og sveitarfélögum til ráðgjafar um málefni fatlaðs fólks, hefur yfirumsjón með framkvæmd á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk, gerir tillögur um breytingar á tilhögun yfirfærslunnar eftir því sem ástæða er til, stýrir endurmati á yfirfærslunni og fjallar um vafamál og álitamál sem upp kunna að koma.
15. Ráðherra er í lögunum gert að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk eigi síðar en í mars 2011 þar sem meðal annars verði lögð til ákvæði um réttindagæslumenn fyrir fatlað fólk, persónulega talsmenn og aðgerðir til að draga úr nauðung við fatlað fólk. Frumvarp til laga um réttindagæslu var lagt fram í mars síðastliðnum en frumvarp sem kveður á um aðgerðir til að draga úr nauðung við fatlað fólk verður lagt fyrir Alþingi 1. október næstkomandi.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1736 — 745. mál.
Svar