Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 752. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1737  —  752. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Ragnheiðar E. Árnadóttur um útleigu á skurðstofum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvað tefur útleigu á skurðstofum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja?

    Fundað var með stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja 10. mars sl. í ráðuneytinu þar sem þeir greindu frá ósk sinni um að mega leigja út skurðstofur og sýndu drög að leigusamningi. Áður hafði stofnunin í samráði við Ríkiskaup auglýst skurðstofur til leigu. Að mati ráðuneytisins þurfti nánari upplýsingar um erindi stofnunarinnar og var kallað eftir þeim. Sem dæmi má nefna nánari útlistanir á aðkomu leigjenda að sjúkrahúsinu allan sólarhringinn, skil milli þess sem leigt er og þess sem ekki verður leigt, heimildir starfsmanna leigjenda til að fara um aðra hluta heilbrigðisstofnunarinnar, aðkomu að stoðdeildum o.fl. Benda má á að þar sem ætlunin mun vera að framkvæma skurðaðgerðir á útlendingum þarf mjög að vanda til sóttvarna og tengdra þátta þannig að önnur þjónusta stofnunarinnar truflist ekki vegna smitsjúkdóma.
    Þá taldi ráðuneytið rétt að ráðgast við ráðuneyti fjármála vegna þessarar útleigu á eigum ríkisins. Svör fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn velferðarráðuneytisins hefur nýlega borist. Ráðuneytið reiknar með að afgreiða erindi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir lok þessa mánaðar.