Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 837. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1744 — 837. mál.
velferðarráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um krabbamein.
1. Hversu margir karlar greindust með krabbamein hér á landi árin 2009 og 2010? Hversu mörg tilfelli greindust af hverri tegund krabbameins?
Hjá krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands eru skráðar upplýsingar um alla sem greinast með krabbamein hér á landi og hefur það verið gert síðan árið 1954. Skráin veitir mikilsverðar upplýsingar um þróun þessa sjúkdóms síðustu áratugi og má nýta hana til að reyna að sjá fyrir þróunina næstu árin og þar með að vera betur í stakk búin varðandi fræðslu og forvarnir og meðferð sem tengist þessum sjúkdómi. Síðast en ekki síst er þessi skrá gagnleg við faraldsfræðilegar rannsóknir á orsökum krabbameins.
Samkvæmt upplýsingum frá krabbameinsskránni greinast nú 1.387 Íslendingar á ári með krabbamein. Þetta er há tala, en hafa ber í huga að meira en sex af hverjum tíu geta vænst þess að lifa í fimm ár eða lengur.
Ekki liggja fyrir endanlegar tölur fyrir árið 2010 og vegna fámennis þjóðarinnar er talið æskilegt að skoða tíðni sjúkdómsins í fimm ára tímabilum. Árin 2005–2009 greindust 724 karlar með krabbamein að meðaltali á ári. Flestir greindust með krabbamein í blöðruhálskirtli, eða 220, 78 greindust með lungnakrabbamein, 74 með ristil- og endaþarmskrabbamein, 53 með krabbamein í þvagvegum og um 35 með húðkrabbamein, önnur en sortuæxli, svo helstu tegundirnar séu taldar.
2. Hversu margar konur greindust með krabbamein hér á landi árin 2009 og 2010? Hversu mörg tilfelli greindust af hverri tegund krabbameins?
Árin 2005–2009 greindust 663 konur með krabbamein að meðaltali á ári. Hjá konum er brjóstakrabbamein algengast, 195 greinast með það, 74 greinast með lungnakrabbamein, 62 með ristil- og endaþarmskrabbamein, 31 með húðkrabbamein, önnur en sortuæxli, og 30 með sortuæxli í húð.
3. Hversu margir karlar létust af völdum krabbameins árlega á árabilinu 1991–2011, greint eftir tegundum krabbameins?
Hér er vitnað í dánartölur Hagstofunnar, en þær eru ekki tiltækar nema til ársins 2009. Síðustu fimm árin, 2005–2009, dóu 287 karlar af völdum krabbameins að meðaltali á ári.
Lungnakrabbamein er mannskæðasta krabbameinið hjá körlum. Það leggur að velli 66 karla á ári. Næstflestir deyja af krabbameini í blöðruhálskirtli, eða 51, þá af ristil- og endaþarmskrabbameini, 29 dauðsföll, síðan af krabbameini í brisi, 15 dauðsföll, og loks af krabbameini í þvagvegum, 14 dauðsföll.
4. Hversu margar konur létust af völdum krabbameins árlega á árabilinu 1991–2011, greint eftir tegundum krabbameins?
Síðustu fimm árin, 2005–2009, dóu 253 konur af völdum krabbameins að meðaltali á ári.
Lungnakrabbamein er mannskæðasta krabbameinið hjá konum eins og hjá körlum. Það leggur að velli 65 konur á ári. Næstflestar deyja af völdum brjóstakrabbameins, eða 39, þá af ristil- og endaþarmskrabbameini, 23 dauðsföll, síðan af krabbameini í brisi, 17 dauðsföll, og loks af krabbameini í eggjastokkum, 13 dauðsföll.
Samanburður tuttugu ár aftur í tímann, eins og háttvirtur þingmaður spyr um í þriðja og fjórða lið, leiðir í ljós að dauðsföllum úr krabbameini hefur fjölgað um 32%, sem að hluta til skýrist af fjölgun þjóðarinnar og breyttri aldurssamsetningu. Að teknu tilliti til slíkra þátta hefur svonefnd dánartíðni úr krabbameini lækkað um 16% á þessu tímabili sem einkum er þakkað fyrri greiningu og bættri meðferð.
Þess skal getið að lokum að ákveðið hefur verið að láta vinna sérstaka áætlun um aðgerðir og markmið í baráttunni við krabbamein, svonefnda krabbameinsáætlun, líkt og margar þjóðir hafa gert fyrir hvatningu frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Unnið verður að málinu í ráðuneytinu á næstu mánuðum í náinni samvinnu við heilbrigðisstarfsfólk, sjúklingasamtök og vísindamenn.
Miklar vonir eru bundnar við að með þessu móti sé hægt að draga fram mikilvægustu viðfangsefnin á þessu sviði og skila okkur áfram í baráttunni gegn krabbameini.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1744 — 837. mál.
Svar