Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 845. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1748 — 845. mál.
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um húsafriðun.
1. Hversu mörg hús byggð fyrir 1918 hafa verið rifin eða fjarlægð á annan hátt frá því að lög um húsafriðun tóku gildi? Hvaða hús eru þetta?
Samkvæmt lögum um húsafriðun, nr. 104/2001, ber byggingarfulltrúum að fylgjast með því að eigendur húsa sem hyggjast rífa hús sitt leiti eftir áliti húsafriðunarnefndar áður en leyfi er veitt til framkvæmda. Húsafriðunarnefnd hefur ekki haft tök á því að fylgjast það grannt með niðurrifi húsa að hún geti svarað þessari spurningu svo að óyggjandi sé. Hins vegar ber byggingarfulltrúum sveitarfélaga, sem veita leyfi til framkvæmda, að halda skrá um þær og er því nærtækast að leita til þeirra um upplýsingar af þessu tagi.
2. Í hversu mörgum tilvikum var leitað álits húsafriðunarnefndar áður en húsin voru rifin eða fjarlægð með öðrum hætti?
Skv. 2. mgr. 6. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001, er öllum þeim sem hyggjast breyta, flytja eða rífa húseign sem byggð er fyrir 1918 skylt að leita álits húsafriðunarnefndar. Samkvæmt upplýsingum frá húsafriðunarnefnd hefur nefndin 210 sinnum fjallað um niðurrif húsa á fundum sínum frá því að lögin tóku gildi 20. maí 2001. Af húsum sem nefndin fjallaði um voru 172 reist fyrir 1918 og í þremur tilvikum er húss getið oftar en einu sinni því málefnið var rætt á fleiri en einum fundi. Umfjöllun nefndarinnar endaði nokkrum sinnum með því að lagt var til við ráðherra að friða viðkomandi húseign.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1748 — 845. mál.
Svar