Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 586. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1749  —  586. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um kaupauka- og starfslokagreiðslur fjármálafyrirtækja.

     1.      Hefur Fjármálaeftirlitið sett reglur um kaupauka- og starfslokagreiðslur fjármálafyrirtækja í samræmi við breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 75/2010?
    Ráðuneytið óskaði eftir því að Fjármálaeftirlitið tæki saman drög að svari við fyrirspurninni.
    Samkvæmt upplýsingum eftirlitsins hafa reglur um kaupaukakerfi verið til umfjöllunar í stjórn Fjármálaeftirlitsins að undanförnu. Þar sem um er að ræða eftirlit með málaflokki sem ekki hefur áður verið á hendi Fjármálaeftirlitsins hefur stjórnin tekið sér viðeigandi umþóttunartíma og hefur enn ekki tekið ákvörðun um að gefa þær út og birta.
    Við undirbúning reglnanna var tekið mið af erlendum reglum um sama efni, einkum sænskum reglum, reglum Financial Stability Board og meginreglum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út. Þá var sérstök hliðsjón höfð af drögum að tilskipun (CRD III) sem voru í vinnslu innan ESB allt síðasta ár. Evrópuþingið lagði til vissar breytingar á tilskipuninni sl. sumar. 11. október sl. samþykkti ráð ESB loks tilskipunina með nokkrum breytingum. CEBS (samstarfsnefnd evrópskra eftirlitsaðila á lánamarkaði) gaf síðan í kjölfarið út leiðbeiningar varðandi tilskipunina sem voru skoðaðar í tengslum við vinnu við reglur Fjármálaeftirlitsins.

     2.      Ef svo er, hvernig eru þær reglur?
    Eins og fram kemur í svari við 1. spurningu eru reglur um kaupaukakerfi til umfjöllunar í stjórn Fjármálaeftirlitsins. Á þessari stundu er ekki vitað hvenær stjórnin lýkur umfjöllun sinni. Eins og á við um aðrar reglur sem Fjármálaeftirlitið gefur út verða þær birtar á heimasíðu eftirlitsins.

     3.      Ef svo er ekki, hver er ástæða þess að reglur hafa ekki verið settar?

     Um kaupaukagreiðslur og fyrirhugaða reglusetningu Fjármálaeftirlitsins er fjallað í svari við 1. spurningu. Rétt er að árétta að samkvæmt bráðabirgðaákvæði III við lög nr. 75/2010 eru settar takmarkanir við greiðslu kaupauka til 1. janúar 2012.
    Hvað varðar starfslokasamninga og heimild til setningar reglugerðar um slíka samninga er fjallað í 57. gr. b laga um fjármálafyrirtæki. Í lögunum er ekki gert ráð fyrir reglusetningu Fjármálaeftirlitisins.
    Ákvæði 57. gr. b um starfslokasamninga eru nokkuð ítarleg. Þar eru tiltekin öll þau skilyrði sem fyrir hendi þurfa að vera til þess að heimilt sé að gera starfslokasamning við framkvæmdastjóra eða lykilstarfsmann, form þeirra, tímalengd og opinbera birtingu. Að mati ráðuneytisins er ekki tímabært að taka ákvörðun um hvort nauðsyn kunni að vera til að setja ítarlegri reglur um starfslokasamninga í reglugerð.