Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 850. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1758 — 850. mál.
umhverfisráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um yfirgefin og illa hirt hús og sameiningu lóða í miðbæ Reykjavíkur.
1. Telur ráðherra ástæðu til að grípa til lagasetningar eða annarra aðgerða til að bregðast við fjölda yfirgefinna og illa hirtra húsa í miðbæ Reykjavíkur?
Í lögum og reglugerðum er víða kveðið á um heimildir fyrir eftirlitsaðila til að bregðast við vegna ásigkomulags og frágangs húsa. Hér verður gerð nánari grein fyrir þessum heimildum.
Í 3. mgr. 37. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, er kveðið á um heimild fyrir eftirlitsaðila til aðgangs að fullbyggðu mannvirki sé því verulega áfátt með tilliti til ákvæða laga og reglugerða um byggingarmál.
Í 56. gr. sömu laga er fjallað um heimild til aðgerða til að knýja fram úrbætur. Þar segir að ef byggingarfulltrúi eða Mannvirkjastofnun meti það svo að ásigkomulagi, frágangi, umhverfi eða viðhaldi húss, annars mannvirkis eða lóðar sé ábótavant, af því stafi hætta eða það teljist skaðlegt heilsu, eða ekki sé gengið frá því samkvæmt samþykktum uppdráttum, lögum, reglugerðum og byggingarlýsingu, skuli gera eiganda eða umráðamanni þess aðvart og leggja fyrir hann að bæta úr því sem áfátt sé. Heimilt er fyrir Mannvirkjastofnun og byggingarfulltrúa að beita dagsektum allt að 500.000 kr. til að knýja menn til þeirra verka sem þau skulu hlutast til um samkvæmt lögum um mannvirki og reglugerðum, eða láta af ólögmætu atferli. Einnig er heimilt fyrir byggingarfulltrúa og Mannvirkjastofnun að láta vinna verk, sem þau hafa lagt fyrir að unnið skuli, á kostnað þess sem vanrækt hefur að vinna verkið. Heimilt er að innheimta kostnað og dagsektir með fjárnámi.
Í 61. gr. núgildandi byggingarreglugerðar, nr. 441/1998, er fjallað um byggingareftirlit og segir m.a. í 61.5 gr. byggingarreglugerðar að sé ásigkomulagi, frágangi, notkun, umhverfi eða viðhaldi húss eða annars mannvirkis ábótavant eða stafi af því hætta að mati byggingarfulltrúa og/eða slökkviliðsstjóra skuli hann gera eiganda eða umráðamanni þess aðvart og leggja fyrir hann að bæta úr því sem áfátt sé. Einnig er í 61.7 gr. byggingarreglugerðar að finna heimild fyrir byggingarnefnd eða byggingarfulltrúa að láta framkvæma þær endurbætur sem nefndin/byggingarfulltrúinn telur nauðsynlegar á kostnað eiganda (umráðamanns) telji nefndin/byggingarfulltrúinn að útlit húss eða annars mannvirkis sé mjög ósnyrtilegt eða óviðunandi á annan hátt, eða að óþrifnaður eða óþægindi stafi af og eigandi (umráðamaður) sinnir ekki áskorun nefndarinnar/byggingarfulltrúa um úrbætur.
Í 16. gr. reglugerðar um meðhöndlun úrgangs, nr. 737/2003, er að finna heimild til handa heilbrigðisnefnd til að fyrirskipa hreinsun lóða og lendna og ef sérstök ástæða er til, niðurrif húsa og girðinga í niðurníðslu. Einnig getur heilbrigðisnefnd látið hreinsa einkalóðir á kostnað eigenda telji nefndin þess þörf vegna mengunar og óhollustu.
Í 23. gr. reglugerðar um meðhöndlun úrgangs er kveðið á um þvingunarúrræði en þar kemur fram að heimilt sé að veita viðkomandi aðila áminningu til að knýja á um framkvæmd ráðstöfunar að uppfylltum hæfilegum fresti til úrbóta sé þess þörf. Ef aðili verður ekki við tilmælum um úrbætur innan tiltekins frests er heilbrigðisnefnd heimilt að ákveða dagsektir þar til úr verður bætt og skal hámark þeirra vera 500.000 kr. á dag. Heilbrigðisnefnd er heimilt að láta vinna verk á kostnað hins vinnuskylda og má innheimta kostnað við verkið sem og dagsektir með fjárnámi.
Samkvæmt 18. gr. reglugerðar um hollustuhætti, nr. 941/2002, ber eiganda eða umráðamanni húss eða mannvirkis að halda eigninni hreinni og snyrtilegri ásamt tilheyrandi lóð og girðingum, þannig að ekki valdi öðrum ónæði.
Borgaryfirvöld fara með framkvæmd skipulags- og byggingarmála í miðbæ Reykjavíkur á grundvelli gildandi skipulags- og mannvirkjalaga og ber ráðuneytið fullt traust til stjórnenda borgarinnar til þess að stjórna þeim málum á þann hátt að velferð borgarbúa sé tryggð í hvívetna. Vegna fyrirspurnar háttvirts þingmanns vill ráðuneytið taka fram að engar ábendingar eða óskir hafa komið fram frá Reykjavíkurborg um það mál sem fyrirspurnin fjallar um eða nauðsyn þess að breyta löggjöf til að Reykjavíkurborg geti tekist á við meintan vanda. Í ljósi framangreinds og þess að nú þegar er að finna áðurgreind ákvæði í lögum og reglugerðum hefur ráðuneytið ekki hugleitt að leggja fram frumvarp um það efni sem fyrirspurnin snýr að.
2. Hver er afstaða ráðherra til sameiningar lóða í miðbæ Reykjavíkur?
Ákvörðun um sameiningu lóða í miðbæ Reykjavíkur er ekki á ábyrgð ráðuneytisins heldur viðkomandi sveitarfélags, í þessu tilviki Reykjavíkurborgar.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1758 — 850. mál.
Svar