Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 794. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1759  —  794. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Bjarna Benediktssonar um yfirtöku fjármálafyrirtækja á atvinnustarfsemi.

    Fjármálaeftirlitið, og eftir atvikum Seðlabanki Íslands, safna upplýsingum frá eftirlitsskyldum aðilum í samræmi við þau eftirlitshlutverk sem þessum stofnunum eru falin lögum samkvæmt.
    Í samræmi við framangreint var óskað var eftir því að Fjármálaeftirlitið tæki saman svör við fyrirspurninni eftir því sem tök væru á. Samkvæmt upplýsingum frá eftirlitinu reyndist ekki unnt að svara öllum spurningum í fyrirspurninni, annars vegar þar sem tölfræðileg samantekt mundi reynast tímafrek eða spurningarnar eiga ekki við.
    Svör eftirlitsins eru eftirfarandi:

     1.      Hversu margar tilkynningar hafa borist til Fjármálaeftirlitsins um yfirtöku fjármálafyrirtækja á atvinnustarfsemi, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga um fjármálafyrirtæki? Svar óskast sundurliðað eftir einstökum mánuðum.
    Samkvæmt upplýsingum Fjármálaeftirlitsins eiga bankar, sparisjóðir og lánafyrirtæki (að Byggðastofnun undanskilinni) alls 149 eignarhluti sem hafa komið til vegna tímabundinnar starfsemi. Eftirfarandi tafla sýnir hvenær starfsemi fjármálafyrirtækjanna hófst eftir mánuðum og ári.

Fjöldi tilkynninga 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
janúar 1 1 1 1
febrúar 1 8 7 4
mars 2 2 1
apríl 6 3 1
maí 1 3 2
júní 8 3
júlí 1 1
ágúst 9 1
september 2 1 2
október 2 1 38 7 2
nóvember 1 1 3 3
desember 1 1 3 4 6 3
Samtals 1 2 0 0 4 3 4 46 53 29 7
     2.      Hver hefur stærð yfirtekinna eignarhluta verið, að meðaltali, í heild og eftir einstökum mánuðum?
    Fjármálaeftirlitið safnar þessum upplýsingum ekki kerfisbundið saman.

     3.      Hver er skipting umræddra tilkynninga eftir atvinnugreinum, sbr. flokkun Hagstofunnar?

    Fjármálaeftirlitið heldur ekki utan um atvinnugreinaflokkun tilkynninga.

     4.      Hefur Fjármálaeftirlitið talið að einhverjar tilkynningar uppfylltu ekki skilyrði 1. málsl. 1. mgr. 22. gr. laga um fjármálafyrirtæki og ef svo er, hvað margar?

    Skilyrðin sem sett eru fram í 1. málsl. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 161/2002 eru tvenns konar:
     i.    Að um sé að ræða tímabundna starfsemi.
    ii.    Tilgangur starfseminnar sé að ljúka viðskiptum eða til að endurskipuleggja starfsemi viðskiptaaðila.
    Fjármálaeftirlitið er ekki í aðstöðu til að meta fyrra skilyrðið við yfirferð á tilkynningum, heldur verður tíminn að leiða það í ljós. Skilgreining á hugtakinu „tímabundið“ var skilgreint með lögum nr. 75/2010 sem eitt ár, sjá nánar svar við 6. spurningu. Tilgangur þeirra tilkynninga sem hafa borist Fjármálaeftirlitinu virðist ávallt annaðhvort vera til að ljúka viðskiptum eða til að endurskipuleggja starfsemi viðskiptaaðila.

     5.      Hefur verið birt opinberlega hvaða fjármálafyrirtæki hafa sent inn tilkynningu og varðandi hvaða fyrirtæki? Ef svo er ekki, hverjar eru ástæður þess að nýta ekki 9. gr. a í lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi?

    Það hefur ekki verið gert. Lagagreinin sem vísað er til (9. gr. a í lögum 87/1998) snýr fyrst og fremst að niðurstöðum í málum og athugunum stofnunarinnar er byggjast á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Fjármálaeftirlitið hefur birt opinberlega gagnsæisstefnu sína í samræmi við fyrrgreinda lagagrein og er hún aðgengileg á vefsíðu stofnunarinnar.

     6.      Í hve mörgum tilvikum er liðinn 12 mánaða tímafrestur skv. 1. mgr. 22. gr. laga um fjármálafyrirtæki?

    Ekki hefur enn reynt á þetta ákvæði þar sem það var innleitt í júní 2010 með lögum nr. 75/2010 sem tóku gildi 26. júní 2010.

     7.      Í hve mörgum tilvikum hefur tímafrestur verið framlengdur og þá til hve langs tíma?

    Á ekki við, sjá nánar svar við 6. spurningu.

     8.      Hafa verið sett skilyrði vegna slíkrar framlengingar, svo sem varðandi sölutilraunir?

    Á ekki við, sjá nánar svar við 6. spurningu.

     9.      Hefur keppinautum slíkra fyrirtækja verið gefinn kostur á að tjá sig um fyrirhugaða framlengingu?
    Á ekki við, sjá nánar svar við 6. spurningu.

     10.      Hafa ákvarðanir um framlengingu verið birtar, skv. 9. gr. a í lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi?

    Á ekki við, sjá nánar svar við 6. spurningu.
     11.      Hafa fyrirtæki, yfirtekin af fjármálafyrirtækjum, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga um fjármálafyrirtæki, birt upplýsingar í samræmi við VII. og VIII. kafla laga um verðbréfaviðskipti? Í hve mörgum tilvikum hefur það ekki verið gert og hverjar hafa afleiðingar þess verið
?
    Fjármálaeftirlitið getur ekki veitt ítarlegar upplýsingar um framangreind atriði að svo stöddu. Eftir að tilkynning berst um yfirtöku á yfir 40% eignarhlut er vinnuregla Fjármálaeftirlitsins á þá leið að Fjármálaeftirlitið óskar eftir því við fjármálafyrirtækið að viðskiptaaðilinn verði upplýstur um að umrædd lagaákvæði eigi við, þ.e. að viðskiptaaðilanum ber að sinna upplýsingaskyldu í samræmi við framangreinda kafla verðbréfaviðskiptalaganna, en í því felst m.a. birting ársreiknings, árshlutareiknings og breytingar á samþykktum.