Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 359. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1782  —  359. mál.




Frumvarp til laga


um gistináttaskatt.

(Eftir 2. umr., 10. júní.)


1. gr.
Markmið.

    Markmið laga þessara er að afla tekna til að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun fjölsóttra ferðamannastaða, friðlýstra svæða og þjóðgarða. Jafnframt að afla tekna til þess að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins.

2. gr.

Gistináttaskattur.

    Greiða skal í ríkissjóð gistináttaskatt af hverri seldri gistináttaeiningu eftir því sem nánar er ákveðið í lögum þessum. Gistináttaeining er leiga á gistiaðstöðu í allt að einn sólarhring, þ.m.t. yfir nótt. Með gistiaðstöðu er átt við húsnæði eða svæði sem leigt er út í þeim tilgangi að þar sé dvalið yfir nótt, svefnaðstaða sé fyrir hendi eða hægt sé að koma henni fyrir og leigan sé almennt til skemmri tíma en eins mánaðar, svo sem hús, íbúðir og herbergi, þ.m.t. herbergi á hótelum og gistiheimilum, sem og tjaldstæði og stæði fyrir húsbíla, tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi.
    Gistináttaskattur skal nema 100 kr. fyrir hverja selda gistináttaeiningu.
    Tilgreina skal gistináttaskatt á sölureikningi eða greiðslukvittun og myndar hann stofn til virðisaukaskatts.

3. gr.
Undanþágur.

    Atvinnustarfsemi sem er undanþegin virðisaukaskatti er undanþegin gistináttaskatti.

4. gr.
Skattskyldir aðilar.

    Öllum þeim sem selja gistináttaeiningar skv. 1. mgr. 2. gr. ber skylda til að innheimta og standa skil á gistináttaskatti.
    Undanþegnir skattskyldu eru þeir sem uppfylla skilyrði 3. tölul. 4. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
    Skattskyldir aðilar skulu ótilkvaddir senda ríkisskattstjóra tilkynningu um skattskylda starfsemi áður en hún hefst.
    Ríkisskattstjóri heldur skrá yfir skattskylda aðila samkvæmt lögum þessum.

5. gr.
Álagning gistináttaskatts.

    Ríkisskattstjóri annast álagningu gistináttaskatts skv. 2. gr. Skattskyldir aðilar skulu greiða gistináttaskatt fyrir hvert uppgjörstímabil miðað við fjölda seldra gistináttaeininga.
    Uppgjörstímabil gistináttaskatts skal vera tveir mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október og nóvember og desember. Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir. Eigi síðar en á gjalddaga skulu skattskyldir aðilar ótilkvaddir skila innheimtumanni ríkissjóðs skýrslu um fjölda seldra gistináttaeininga á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu skattsins.
    Skýrslur vegna gistináttaskatts skulu vera á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.

6. gr.

Viðurlög.


    Sé gistináttaskatti ekki skilað á réttum tíma skal skattskyldur aðili sæta álagi til viðbótar skatti samkvæmt skýrslu um fjölda seldra gistináttaeininga. Álag skal vera 1% af þeirri fjárhæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó verður það ekki hærra en 10%.
    Sé skatti ekki skilað innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er.
    Heimilt er innheimtumanni ríkissjóðs að láta lögreglu stöðva atvinnurekstur þess er eigi gerir skil á réttum gjalddaga þar til skil eru gerð, m.a. með því að setja skrifstofur, starfsstöðvar og gistiaðstöðu hans undir innsigli.

7. gr.
Ýmis ákvæði.

    Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um álagningu, innheimtu, tilhögun bókhalds, eftirlit, upplýsingaskyldu, viðurlög, kærur og aðra framkvæmd skulu gilda, eftir því sem við geta átt, ákvæði laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

8. gr.
Reglugerðarheimild.

    Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd laga þessara í reglugerð.

9. gr.
Gildistaka.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2012 og gilda um þær gistináttaeiningar sem seldar eru frá og með þeim degi.