Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 892. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1796 — 892. mál.
til fjármálaráðherra um efnahagsreikning Arion banka, Íslandsbanka og NBI (Landsbankans) við stofnun.
Hver var efnahagsreikningur Arion banka, Íslandsbanka og NBI (Landsbankans) við stofnun hvers og eins þeirra haustið 2009? Svar óskast um bókfært virði eigna og skulda hvers og eins banka, samkvæmt viðurkenndum reiknisskilavenjum (IFRS), og raunvirði eða sannvirði eigna hvers og eins banka við yfirfærslu frá hinum föllnu bönkum (Kaupþingi, Glitni og Landsbanka), fyrir og eftir útgáfu fjármálagerninga fyrir mismun eigna og skulda og eiginfjárframlagi íslenska ríkisins. Í svarinu verði sérstaklega tekið fram virði útlána hinna föllnu banka til einstaklinga og fyrirtækja, og virði þeirra lána sem voru þá bókuð sem útlán í íslenskum krónum og í erlendri mynt.
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1796 — 892. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um efnahagsreikning Arion banka, Íslandsbanka og NBI (Landsbankans) við stofnun.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.