Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 816. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1807  —  816. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um verktakasamninga.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu margir eru starfandi á verktakasamningum í ráðuneytinu?

    Aðkeypt sérfræðiþjónusta í ráðuneytinu felst einkum í kaupum á lögfræðiþjónustu, ráðgjafarþjónustu og þjónusta þýðenda. Þessi vinna fer nær undantekningarlaust fram utan ráðuneytisins. Í maí sl. störfuðu þannig sex lögaðilar fyrir ráðuneytið. Um var að ræða þrjú ráðgjafarfyrirtæki, tvo túlka og einn lögfræðing.