Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 646. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1809 — 646. mál.
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Bjarna Benediktssonar um málefni fjármálafyrirtækja og skilanefnda.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur ekki beinan aðgang að upplýsingum um málefni einstakra eftirlitsskyldra aðila. Ráðuneytið óskaði eftir því við Fjármálaeftirlitið að það tæki saman svör við spurningum á þskj. 1142. Fylgja svör eftirlitsins hér á eftir.
1. Hvaða viðskiptabankar, sparisjóðir og fjárfestingarbankar:
a. eru að störfum í landinu,
b. hafa hætt störfum frá því í byrjun árs 2008?
Í árskýrslu Fjármálaeftirlitsins fyrir árið 2010 (tímabilið 1.7.2009 til 30.6.2010) kemur fram að 30.6.2010 hafi verið starfandi 5 viðskiptabankar, 12 sparisjóðir og 8 lánafyrirtæki (lánafyrirtæki hafa heimild til að kalla sig fjárfestingarbanka skv. 3. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002). Ofangreindar tölur telja ekki með fjármálafyrirtæki í slitameðferð eða undir bráðabirgðastjórn. Þá er vísað á heimasíðu eftirlitsins þar sem birtur er heildarlisti yfir eftirlitsskylda aðila, www.fme.is.
Viðskiptabankar, sparisjóðir og lánafyrirtæki í slitameðferð eða undir bráðabirgðastjórn 30.6.2010 voru Glitnir banki hf.; Kaupþing banki hf.; Landsbanki Íslands hf.; Sparisjóðabanki Íslands hf.; ALMC hf. (Straumur-Burðarás Fjárfestingarbanki hf.); Byr sparisjóður; Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hf. (SPRON); Sparisjóðurinn í Keflavík; Sparisjóður Mýrasýslu (nauðasamningum lokið); Frjálsi Fjárfestingarbankinn hf.; VBS fjárfestingarbanki hf.; Askar Capital hf. og Avant hf.
Hinn 1.10.2010 afturkallaði Fjármálaeftirlitið starfsleyfi viðskiptabankans ALMC hf. (áður Straumur-Burðarás Fjárfestingarbanki hf.), sbr. frétt á heimasíðu eftirlitsins 18.10.2010.
Hinn 23.2.2011 afturkallaði Fjármálaeftirlitið starfsleyfi sparisjóðanna Byrs sparisjóðs og Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON), og auk þess starfsleyfi lánafyrirtækisins Frjálsa fjárfestingarbankans hf., sbr. frétt á heimasíðu eftirlitsins 14.3.2011.
Hinn 7.4.2011 afturkallaði Fjármálaeftirlitið starfsleyfi lánafyrirtækisins Askar Capital hf., starfsleyfi viðskiptabankans Sparisjóðabanka Íslands hf. og starfsleyfi fjárfestingarbankans VBS fjárfestingarbanka hf., sbr. frétt á heimasíðu eftirlitsins 8.4.2011.
Frá 2008 hefur nokkrum sparisjóðum verið slitið vegna samruna: Samruna Sparisjóðsins í Keflavík við Sparisjóð Vestfirðinga og Sparisjóð Húnaþings og Stranda; samruna Sparisjóðs Skagafjarðar við Sparisjóð Siglufjarðar (AFL sparisjóður); samruna Sparisjóðs Norðlendinga við Byr sparisjóð; samruna Sparisjóðs Kaupþings hf. við Arion banka hf.; samruna Spkef sparisjóðs við NBI hf.; samruna Sparisjóðs Mýrasýslu við Arion banka hf.
2. Hve margir starfa hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og fjárfestingarbönkum?
Umbeðnar upplýsingar liggja ekki fyrir.
3. Hve margir starfa hjá skilanefndum fjármálafyrirtækja?
Umbeðnar upplýsingar liggja ekki fyrir.
4. Hve margir störfuðu hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og fjárfestingarbönkum á árinu 2007?
Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman upplýsingar fyrir árin 2007 og 2008: Stöðugildi samtals í árslok 2007: Viðskiptabankar – 4.050; sparisjóðir – 785; lánafyrirtæki – 558.
Stöðugildi samtals í árslok 2008: Viðskiptabankar – 3.526; sparisjóðir – 802; lánafyrirtæki – 607.
Bent er á að upplýsingar um stöðugildi má finna í skýringum með ársreikningum þessara aðila.
5. Hverjar voru heildareignir 10 stærstu fjármálafyrirtækjanna:
a. á árinu 2007,
b. í lok árs 2010?
Í ársskýrslu Fjármálaeftirlitsins fyrir árið 2010 er að finna upplýsingar um heildareignir viðskiptabankanna frá 2003 til 2010. Vakin er athygli á því að tímabil ársskýrslunnar nær frá 1.7.2009 til 30.6.2010. Þá bendir Fjármálaeftirlitið einnig á samantekt sem ber heitið: Heildarniðurstöður ársreikninga fjármálafyrirtækja og verðbréfa- og fjárfestingarsjóða fyrir árið 2007, útgefin í september 2008, sem hægt er að nálgast á heimasíðu eftirlitsins. Fjármálaeftirlitið hefur ekki upplýsingar fyrir lok árs 2010 þar sem ekki hafa borist endanlegir ársreikningar frá öllum aðilum.
6. Hverjar voru heildareignir þeirra fjármálafyrirtækja sem voru í slitameðferð í lok árs 2010?
Fjármálaeftirlitið hefur umbeðnar upplýsingar ekki tiltækar en bendir á að upplýsingarnar má finna í ársreikningum þessara aðila.
7. Hvenær er áætlað að slitameðferð ljúki hjá einstökum fjármálafyrirtækjum og með hvaða hætti?
Upplýsingar liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu eða Fjármálaeftirlitinu umfram það sem gefið hefur verið út opinberlega af slitastjórnum.
8. Hver er afstaða íslenska ríkisins sem kröfuhafa í þrotabú fjármálafyrirtækja til þess að leitað sé nauðasamninga til að ljúka slitum fjármálafyrirtækja?
Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur lýst þeirri afstöðu að ekki séu að áliti ráðuneytisins lagaskilyrði til að skilanefndir haldi áfram rekstri þrotabúa fjármálafyrirtækja án þess að annaðhvort sé leitað nauðasamninga eða gjaldþrotameðferðar. Æskilegt hlýtur að teljast að nauðasamninga sé leitað eins fljótt og kostur er og þess þannig freistað að koma þrotabúunum í hendur réttra eigenda og greiða fyrir viðskiptum með hluti í þeim.
9. Telur ráðherra að það muni flýta fyrir endurreisn íslenska fjármálakerfisins að slitameðferð ljúki með nauðasamningum, í stað þess að lok slitameðferðar verði við greiðslu allra viðurkenndra krafna eða skv. 2. mgr. 103. gr. a laga um fjármálafyrirtæki?
Efnahags- og viðskiptaráðherra telur einsýnt að nauðasamningar séu fljótvirkasta og skynsamlegasta leiðin til að koma þrotabúunum í hendur réttra eigenda og skapa þar með beint samband eigenda og stjórnenda í a.m.k. tveimur af þremur stóru bankanna. Ávinningur af slíku er augljós, sérstaklega í ljósi þess umboðs- og stjórnunarvanda sem einkennt hefur endurreisn fjármálakerfisins og gerð er skýr grein fyrir í nýútkominni skýrslu Samkeppniseftirlitsins.
10. Með hvaða hætti er hlutleysi tryggt og hagsmunaárekstur fyrirbyggður í störfum slita- og skilanefnda?
Með frumvarpi til laga um breytingu á lögum um slit fjármálafyrirtækja er gert ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið fái ótvírætt eftirlitshlutverk með stjórnarháttum slitastjórna og skilanefnda og því að þær fari að ákvæðum 19. gr. laga um fjármálafyrirtæki um góða viðskiptahætti. Kröfuhafar eiga þar að auki ávallt rétt til að bera kvartanir um starfshætti slitastjórna eða skilanefnda undir héraðsdóm, enda lúta þær ákvæðum laga um gjaldþrotaskipti o.fl. um störf skiptastjóra.
11. Hver er kostnaður hvers og eins þrotabús fjármálafyrirtækjanna:
a. við starf hvers og eins skilanefndarmanns,
b. vegna þjónustu hvers og eins fyrirtækis sem skilanefndarmaður starfar fyrir eða starfar hjá?
Hvorki ráðuneytið né Fjármálaeftirlitið hafa umbeðnar upplýsingar tiltækar. Upplýsingar um þóknanir skilanefnda og slitastjórna á að vera að finna í skýringum með ársreikningum þessara aðila.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1809 — 646. mál.
Svar