Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 840. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1810 — 840. mál.
innanríkisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um hleranir.
Vegna fyrirspurnarinnar var aflað upplýsinga frá embætti ríkissaksóknara, dómstólaráði og embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
1. Hvernig er ferli við umsókn og veitingu heimildar til hlerana?
Heimildir til hlerana eru einungis veittar með úrskurði dómstóla að undangenginni kröfu lögreglu þar um og að uppfylltum tilteknum lagaskilyrðum, sbr. XI. kafla laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, þ.e. að ástæða sé til að ætla að upplýsingar, sem skipt geta miklu fyrir rannsókn máls, fáist með þeim hætti, að rannsókn beinist að broti sem varðað getur að lögum átta ára fangelsi ellegar að ríkir almannahagsmunir eða einkahagsmunir krefjist þess.
2. Hve margar heimildir til hlerana voru „virkar“ 1. maí 2009, 1. maí 2010 og 1. maí 2011?
Samkvæmt upplýsingum embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem sér um framkvæmd símhlerana á landsvísu var eftirtalinn fjöldi hlerana virkur á umræddum dögum, en að auki eru upplýsingar um hve margir úrskurðir þar af voru til framhaldshlerunar:
3. Hve margar heimildir til hlerana voru veittar árin 2009, 2010 og 2011? Hvaða aðilar, t.d. stofnanir, óskuðu eftir hlerunum? Hve mörgum umsóknum var hafnað?
Eftirfarandi tafla sýnir fjölda úrskurða til símhlerana sem voru veittir 2009, 2010 og 2011 samkvæmt upplýsingum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Miðað er við ár úrskurðarins þó að hann geti veitt heimild til símhlerunar yfir lengra tímabil en 12 mánuði. Gögn eru aðgreind eftir því hvort um er að ræða fyrsta úrskurð til símhlerunar eða framhaldsúrskurð.
Eftirfarandi tafla sýnir fjölda úrskurða til símhlerana sem voru veittir 2009, 2010 til 27. maí 2011, greint eftir þeim stofnunum (lögregluembættum) sem óskuðu eftir þeim, samkvæmt upplýsingum embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu:
Samkvæmt upplýsingum dómstólaráðs var fjöldi úrskurða um símhleranir á umræddu tímabili eftirfarandi:
Ekki liggur fyrir á þessu stigi í hversu mörgum tilvikum kröfum lögreglu um símhleranir var hafnað.
4. Hjá hvers konar fyrirtækjum hefur verið hlerað framangreind ár, sundurliðað eftir fyrirtækjamerkingu Hagstofunnar? Hjá hve mörgum einstaklingum var hlerað á sama tíma?
Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara hafa símar fyrirtækja verið hleraðir í tveimur tilvikum á framangreindu tímabili en ekki er unnt að veita nánari upplýsingar um þessar hleranir vegna rannsóknarhagsmuna. Í öðrum tilvikum hefur verið um hleranir hjá einstaklingum að ræða.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1810 — 840. mál.
Svar

| 1. maí 2009 | 1. maí 2010 | 1. maí 2011 | |
| Fjöldi úrskurða | 17 | 10 | 9 |
| - þar af framhald | 5 | 4 | 4 |
3. Hve margar heimildir til hlerana voru veittar árin 2009, 2010 og 2011? Hvaða aðilar, t.d. stofnanir, óskuðu eftir hlerunum? Hve mörgum umsóknum var hafnað?
Eftirfarandi tafla sýnir fjölda úrskurða til símhlerana sem voru veittir 2009, 2010 og 2011 samkvæmt upplýsingum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Miðað er við ár úrskurðarins þó að hann geti veitt heimild til símhlerunar yfir lengra tímabil en 12 mánuði. Gögn eru aðgreind eftir því hvort um er að ræða fyrsta úrskurð til símhlerunar eða framhaldsúrskurð.
| 2009 | 2010 | (Til 27. maí) 2011 | |
| Tenging | 116 | 119 | 45 |
| Framhald | 57 | 172 | 28 |
| Samtals | 173 | 172 | 73 |
Eftirfarandi tafla sýnir fjölda úrskurða til símhlerana sem voru veittir 2009, 2010 til 27. maí 2011, greint eftir þeim stofnunum (lögregluembættum) sem óskuðu eftir þeim, samkvæmt upplýsingum embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu:
| 2009 | 2010 | 2011 (til 27.maí) | |
| Lögregluembættið á Akranesi | 2 | 0 | 4 |
| Lögregluembættið á Akureyri | 0 | 0 | 8 |
| Lögregluembættið í Borgarnesi | 8 | 0 | 0 |
| Lögregluembættið á Eskifirði | 4 | 2 | 0 |
| Lögregluembættið á Ísafirði | 0 | 1 | 1 |
| Lögregluembættið á höfuðborgarsvæðinu | 93 | 72 | 28 |
| Lögregluembættið á Suðurnesjum | 40 | 25 | 7 |
| Ríkislögreglustjóri | 2 | 0 | 10 |
| Lögregluembættið á Selfossi | 3 | 0 | 0 |
| Sérstakur saksóknari | 19 | 72 | 15 |
| Lögregluembættið í Vestmannaeyjum | 2 | 0 | 0 |
| Samtals | 173 | 172 | 73 |
Samkvæmt upplýsingum dómstólaráðs var fjöldi úrskurða um símhleranir á umræddu tímabili eftirfarandi:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.