Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 893. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1817  —  893. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um stöðugildi lækna og hjúkrunarfræðinga.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig þróaðist fjöldi stöðugilda lækna og hjúkrunarfræðinga árin 2007–2010, sundurliðað eftir heilbrigðisstofnunum?

    Töflur 1 og 2 sem hér fara á eftir sýna annars vegar þróun fjölda stöðugilda lækna í Læknafélagi Íslands og hins vegar þróun fjölda stöðugilda hjúkrunarfræðinga í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
    Stöðugildi vísar til þess sem oft er nefnt ársverk í dagvinnu.
    Töflurnar sýna einnig svokallað vinnuframlag þessara stétta en það er samræmd magnmæling á dagvinnu og yfirvinnu.
    Tölurnar fengust úr Oracle, launa- og starfsmannakerfi ríkisins.
Tafla 1.    Þróun fjölda stöðugilda og vinnuframlags lækna á heilbrigðisstofnunum (2007–2010).*

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


*    Í töflunni eru læknisverk sem greitt er fyrir með verktakagreiðslum ekki meðtalin. Það getur skýrt sveiflur í fjölda stöðugilda og vinnuframlagi, t.d. á heilbrigðisstofnununum á Blönduósi og Patreksfirði. Tafla 1, frh.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Tafla 1, frh.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Skýringar:

1)    St. Franciskusspítali, heilbrigðisstofnanirnar Akranesi, Hólmavík og Hvammstanga ásamt heilsugæslustöðvunum Borgarnesi, Ólafsvík, Grundarfirði og Búðardal voru sameinaðar í eina stofnun, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, 1. janúar 2010. Engin stöðugildi voru skráð í launakerfi ríkisins á St. Franciskusspítala fyrir 1. janúar 2009. Á árinu 2009 var meðalfjöldi stöðugilda jafnt vinnuframlagi (2,9).
2)    Heilbrigðisstofnanirnar á Ísafirði og Bolungarvík sameinuðust í eina stofnun, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, 1. janúar 2009.
3)    Heilbrigðisstofnunin Siglufirði og Heilsugæslustöðin Ólafsfirði voru sameinaðar í eina stofnun, Heilbrigðisstofnunina Fjallabyggð, 1. janúar 2010. Fyrir þann tíma voru stöðugildi á Ólafsfirði ekki skráð í launakerfi ríkisins.
4)    Læknar sem voru á verktakasamningi á St. Jósefsspítala voru færðir á fastlaunasamning á árinu 2010 og skýrir það fjölgun stöðugilda milli áranna 2009 og 2010.

Tafla 2.     Þróun fjölda stöðugilda og vinnuframlags hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum (2007–2010).

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Tafla 2, frh.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Tafla 2, frh.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Skýringar:          
1)    Heimahjúkrun fyrir Reykjavík og Seltjarnarnes var flutt frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar 1. janúar 2009.
2)    St. Franciskusspítali, heilbrigðisstofnanirnar Akranesi, Hólmavík og Hvammstanga ásamt heilsugæslustöðvunum Borgarnesi, Ólafsvík, Grundarfirði og Búðardal voru sameinaðar í eina stofnun, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, 1. janúar 2010. Á St. Franciskusspítala voru ekki skráð stöðugildi í launakerfi ríkisins á fyrir 1. janúar 2009. Á árinu 2009 var meðalfjöldi stöðugilda 8,0.
3)    Heilbrigðisstofnanirnar á Ísafirði og Bolungarvík sameinuðust í eina stofnun, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, 1. janúar 2009.
4)    Heilbrigðisstofnunin Siglufirði og Heilsugæslustöðin Ólafsfirði voru sameinaðar í eina stofnun, Heilbrigðisstofnunina Fjallabyggð, 1. janúar 2010. Fyrir þann tíma voru stöðugildi á Heilsugæslustöðinni Ólafsfirði ekki skráð í launakerfi ríkisins.
5)    Hjúkrunarheimilið Fossheimar var opnað í apríl 2008. Þá fjölgaði hjúkrunarrýmum stofnunarinnar um 16 rými.
6)    Sjúkrasvið St. Jósefsspítala, Sólvangs sameinaðist Landspítala í janúar 2011.