Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 900. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1846  —  900. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um stöðu einstaklinga sem hlotið hafa dóm en bíða afplánunar.

Frá Oddnýju G. Harðardóttur.



     1.      Hve margir einstaklingar sem hlotið hafa dóm bíða eftir að geta hafið afplánun, skipt eftir kyni og aldri?
     2.      Hve margir þessara einstaklinga, skipt eftir kyni, aldri, brotaflokkum og lengd dóma,
                  a.      má reikna með að verði vistaðir í öryggisfangelsi,
                  b.      fullnægja skilyrðum um vistun í opnu fangelsi,
                  c.      fullnægja skilyrðum um afplánun í samfélagsþjónustu?
     3.      Hve margir einstaklingar bíða eftir afplánun vegna vararefsingar?


Skriflegt svar óskast.