Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 903. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1850  —  903. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um tekjur sveitarfélaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



    Hversu hátt hlutfall tekna sveitarfélaga sl. 5 ár kemur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og hversu há er fjárhæðin í hverju tilviki? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum í röð eftir hlutfalli.