Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 879. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1856  —  879. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um innflutning aflandskróna.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hverjir hafa fengið að flytja inn aflandskrónur til fjárfestinga hér á landi og um hvaða fjárhæðir er að ræða? Svar óskast sundurliðað eftir:
     a.      íslenskum einstaklingum,
     b.      erlendum einstaklingum,
     c.      íslenskum fyrirtækjum,
     d.      erlendum fyrirtækjum.


    Óskað var eftir svörum við fyrirspurninni hjá Seðlabanka Íslands sem fer með eftirlit með aflandskrónum.
    Heildarfjárhæð innstreymis innlends gjaldeyris var alls 11.784.867.585 kr. á árinu 2010.
    Í svari Seðlabanka Íslands kemur fram að bankanum er ekki heimilt með vísan til þagnarskyldu, sbr. 15. gr. laga um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, að birta upplýsingar um hverjir hafa fengið að flytja inn aflandskrónur sundurliðað eftir fjárhæðum.
    Í ljósi framangreinds hefur ráðuneytið ekki tök á því að svara öllum þeim atriðum sem spurt er um í fyrirspurninni.