Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 851. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1898  —  851. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um gamalt húsnæði.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvert er hlutfall íbúðarhúsnæðis á Íslandi sem byggt var árið 1918 eða fyrr?
     2.      Hversu hátt hlutfall alls húsnæðis á Íslandi var byggt árið 1918 eða fyrr í fermetrum talið?


    Í tilefni af fyrirspurninni var aflað upplýsinga frá Þjóðskrá Íslands.
    Íbúðarhúsnæði byggt fyrir 1918 er 3,1% af fjölda húsa, 2,1% af fjölda íbúða og 2,1% af brúttóflatarmáli.
    Allt húsnæði byggt fyrir 1918 er 1,7% af brúttóflatarmáli og 2,1% af fjölda húsa.

Til skýringar:
    Íbúðarhúsnæðistalningin miðast við hlutfall matshluta sem byggðir voru árið 1918 eða fyrr.
    Fermetrar eru skráðir brúttófermetrar.
    Ekki er tekið með við útreikninginn húsnæði þar sem byggingarár er óskráð.
    Tölurnar miðast við júní 2011.