Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 878. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1899 — 878. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um undanþágur gagnavera frá greiðslu virðisaukaskatts.
1. Hvað líður setningu reglugerða um undanþágur frá greiðslu virðisaukaskatts í rekstri gagnavera?
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. A laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. lög nr. 163/2010, er innflutningur á netþjónum og tengdum búnaði undanþeginn virðisaukaskatti í þeim tilvikum þegar eigendur þeirra eru heimilisfastir í öðru aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu, aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum og ekki með fasta starfsstöð hér á landi í skilningi 4. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
Samkvæmt 4. mgr. 42. gr. A er ráðherra heimilt með reglugerð að kveða nánar á um framkvæmd og skilyrði undanþágunnar, þ.m.t. til hvaða búnaðar hún nær.
Í kjölfar setningar laga nr. 163/2010 taldi ráðuneytið nægilegt að gefa út tilmæli til tollstjóra vegna útfærslu undanþágu á greiðslu virðisaukaskatts við innflutning á netþjónum og tengdum búnaði skv. 42. gr. A í stað þess að setja reglugerð um framkvæmd og skilyrði undanþágunnar. Tilmæli ráðuneytisins til tollstjóra voru send 29. júní 2011 og fylgja svari þessu. Í tilmælunum kemur fram að að netþjónar skuli falla í tollflokk 8471 og að búnaður tengdur netþjónunum skuli falla í tollflokk 8517, sbr. eftirfarandi:
„1. 8471 – Sjálfvirkar gagnavinnsluvélar og einingar til þeirra; lesarar fyrir segulletur eða ritletur, vélar til að umskrá gögn á gagnamiðla á táknmáli og vélar til að vinna úr slíkum gögnum, ót.a.
2. 8517 – Símtæki, einnig símar fyrir farsímanet eða önnur þráðlaus net; önnur tæki til sendingar eða móttöku á máli, myndum eða öðrum gögnum, þar með talið tæki til samskipta á línu eða þráðlausu neti (svo sem staðtengdu neti eða víðneti), þó ekki sendi- eða móttökubúnaður í nr. 8443, 8525, 8527 eða 8528.“
2. Hvaða skilyrði þurfa gagnaverin að uppfylla til að fá niðurfelldan virðisaukaskatt?
Samkvæmt 2. mgr. 42. gr. A laga nr. nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, eru skilyrði fyrir því að fá virðisaukaskatt undanþeginn skv. 1. mgr. 42. gr. A eftirfarandi:
1. Eigandi netþjóna og tengds búnaðar er í virðisaukaskattsskyldri starfsemi í heimaríki sínu.
2. Starfsemi eiganda netþjóna og tengds búnaðar væri skráningarskyld samkvæmt lögum þessum væri hún rekin hér á landi.
3. Netþjónar og tengdur búnaður er gagngert fluttur til landsins til notkunar eða staðsetningar í gagnaveri sem eigandi þeirra er í viðskiptum við.
4. Netþjónar og búnaður er eingöngu nýttur af eigandanum en ekki í annarri starfsemi gagnaversins.
5. Vinnsla netþjóna og tengds búnaðar er nýtt utan Íslands eða í þágu aðila sem ekki eru heimilisfastir eða með fasta starfsstöð hér á landi.
Ákvæði 42. gr. A laganna kom til framkvæmda 1. maí 2011 og því geta eigendur netþjóna og tengds búnaðar með heimilisfesti í öðru aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu, aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum sem ekki eru með fasta starfsstöð hér á landi frá þeim tíma flutt inn netþjóna og tengdan búnað til Íslands án greiðslu virðisaukaskatts svo fremi sem ofangreindum skilyrðum sé fullnægt.
Til frekari upplýsinga má nefna að í nefndaráliti efnahags- og skattanefndar við umræðu um frumvarp sem varð að lögum nr. 163/2010 kom fram að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) yrði tilkynnt um þau og leitað staðfestingar á því að ekki væri um að ræða ólögmæta ríkissaðstoð samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Ráðuneytið sendi ESA óformlega tilkynningu um lagasetninguna þar sem óskað var eftir leiðbeiningum frá stofnuninni um framgang hennar, m.a með tilliti til gildistökunnar 1. maí. ESA tilkynnti ráðuneytinu 1. júlí sl. að stofnunin gæti ekki orðið við þeirri beiðni. Í framhaldi af því sendi fjármálaráðuneytið 1. september sl. formlega tilkynningu til ESA vegna laga nr. 163/2010 þar sem meðal annars er tilkynnt um ákvæði 42. gr. A, þ.e. um innflutning á netþjónum og tengdum búnaði sem gagngert er fluttur til Íslands til notkunar eða staðsetningar í gagnaveri sem eigandi þeirra er í viðskiptum við. Málið er því nú til formlegrar meðferðar hjá ESA.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti:
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1899 — 878. mál.
Svar

Tilmæli um innflutning á netþjónum og tengdum búnaði
skv. 42. gr. A laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
(29. júní 2011.)
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.