Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 892. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1901  —  892. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um efnahagsreikning Arion banka, Íslandsbanka og NBI (Landsbankans) við stofnun.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver var efnahagsreikningur Arion banka, Íslandsbanka og NBI (Landsbankans) við stofnun hvers og eins þeirra haustið 2009? Svar óskast um bókfært virði eigna og skulda hvers og eins banka, samkvæmt viðurkenndum reiknisskilavenjum (IFRS), og raunvirði eða sannvirði eigna hvers og eins banka við yfirfærslu frá hinum föllnu bönkum (Kaupþingi, Glitni og Landsbanka), fyrir og eftir útgáfu fjármálagerninga fyrir mismun eigna og skulda og eiginfjárframlagi íslenska ríkisins. Í svarinu verði sérstaklega tekið fram virði útlána hinna föllnu banka til einstaklinga og fyrirtækja, og virði þeirra lána sem voru þá bókuð sem útlán í íslenskum krónum og í erlendri mynt.

    Fjármálaráðuneytið óskaði eftir því við Bankasýsluna að hún aflaði svara við fyrirspurninni. Svör Bankasýslunnar takmarkast við þau gögn sem hún hefur aðgang að hjá fjármálastofnunum.

Landsbankinn:
    Landsbankinn tók við eignum á bókfærðu virði að fjárhæð 1.409 milljarðar kr. eða 783 milljarðar kr. að gangvirði við yfirfærslu frá gamla bankanum. Yfirteknar skuldir námu 508 milljörðum kr. og voru eignir umfram skuldir 275 milljarðar kr. að gangvirði. Gefið var út skuldabréf af Landsbankanum til gamla bankans jafnt mismuninum að fjárhæð 275 milljarðar kr. Útgefið hlutafé nam 150 milljörðum kr. og hækkaði eignastaðan sem því nam við útgáfu og myndaði eiginfjárgrunn bankans. Eignarhlutur ríkis er 81,33% eða 122 milljarðar kr.
    Yfirtekin útlán námu samtals 1.247 milljörðum kr. á bókfærðu virði eða 661 milljarði kr. að gangvirði, þar af voru 497 milljarðar kr. til fyrirtækja, 158 milljarðar kr. til einstaklinga og 5 milljarðar kr. til fjármálafyrirtækja (sjá töflu).

Tafla 1: Bókfært virði og gangvirði eigna Landsbankans við stofnun
9. október 2008 í millj. kr.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Gjaldeyrisstaða Landsbankans:
    Tölur um skiptingu útlána milli erlendra og innlendra mynta við stofnun eru ekki fyrirliggjandi. Þó liggur fyrir erlend staða bankans 31. desember 2008.

Tafla 2: Erlend staða Landsbankans 31. desember 2008 í millj. kr.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Samtals námu erlendar eignir bankans 568 milljörðum kr. og erlendar skuldir 347 milljörðum kr. 31. desember 2008. Þannig voru erlendar eignir 221 milljarði kr. hærri en skuldir. Á móti kemur að lán í erlendri mynt til viðskiptavina sem ekki hafa tekjur í erlendum myntum námu 176 milljörðum kr. (gjaldeyrisstuðull). Gengisbreytingar hafa ekki áhrif á verð framangreindra lána og var raungjaldeyrisstaða bankans því jákvæð um 45 milljarða kr. (erlendar eignir hærri en erlendar skudir).

Íslandsbanki:
    Íslandsbanki tók við eignum á bókfærðu virði að fjárhæð 1.074 milljarðar kr. eða 564 milljarðar kr. að gangvirði við yfirfærslu frá gamla bankanum. Yfirteknar skuldir námu 564 milljörðum kr. og því jafnvægi milli eigna og skulda. Útgefið hlutafé nam 65 milljörðum kr. og hækkaði eignastaðan sem því nam við útgáfu og myndaði eiginfjárgrunn bankans. Eignarhlutur ríkis er 5% eða 3,25 milljarðar kr.
    Yfirtekin útlán námu samtals 924 milljörðum kr. á bókfærðu virði eða 493 milljörðum kr. að gangvirði, af þeim voru 482 milljarðar kr. til viðskiptavina og 11 milljarðar kr. til fjármálafyrirtækja (sjá töflu 3). Ekki hefur verið gefin út nákvæmari sundurliðun.

Tafla 3: Bókfært virði og gangvirði eigna Íslandsbanka við stofnun
15. október 2008 í millj. kr.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Gjaldeyrisstaða Íslandsbanka:
    Tölur um skiptingu útlána milli erlendra og innlendra mynta við stofnun eru ekki fyrirliggjandi. Þó liggur fyrir erlend staða bankans 31. desember 2008.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Tafla 4: Erlend staða Íslandsbanka 31. desember 2008 í millj. kr.


    Samtals námu erlendar eignir bankans 280 milljörðum kr. og erlendar skuldir 104 milljörðum kr. 31. desember 2008. Þannig voru erlendar eignir 176 milljörðum kr. hærri en skuldir. Á móti kemur að lán í erlendri mynt til viðskiptavina sem ekki hafa tekjur í erlendum myntum námu 179 milljörðum kr. Gengisbreytingar hafa ekki áhrif á verð framangreindra lána og var raungjaldeyrisstaða bankans því neikvæð um 3 milljarða kr. (erlendar eignir lægri en erlendar skuldir).

Arion banki:
    Upplýsingar um Arion banka eru takmarkaðri. Gangvirði yfirtekinna eigna var 452 milljarðar kr. við stofnun, 22. október 2008. Útgefið hlutafé nam 72 milljörðum kr. við stofnun og hækkaði eignastaðan sem því nam við útgáfu og myndaði eiginfjárgrunn bankans. Hinn 8. janúar 2010 var endanlegt uppgjör milli Arion banka og gamla bankans, þá tók Arion banki yfir um 80 milljarða kr. í eignum og 76 milljarða kr. í skuldum og stækkaði efnahagsreikningur bankans um 80 milljarða kr. við það. Hlutafé bankans hækkaði svo jafnt mismun eigna og skulda eða um 4 milljarða kr. og er hlutaféð því tæpir 76 milljarðar kr. Eignarhlutur ríkis er 13% eða tæpir 10 milljarðar kr.
    Yfirtekin útlán námu samtals 359 milljörðum kr. að gangvirði, af þeim voru 324 milljarðar kr. til viðskiptavina og 35 milljarðar kr. til fjármálafyrirtækja (sjá töflu). Ekki hefur verið gefin út nákvæmari sundurliðun.

Tafla 5: Bókfært virði og gangvirði eigna Arion banka við stofnun
22. október 2008 í millj. kr.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Gjaldeyrisstaða Arion banka 31. desember 2008 í millj. kr.
    Tölur um skiptingu útlána milli erlendra og innlendra mynta við stofnun eru ekki fyrirliggjandi. Þó liggur fyrir erlend staða bankans 31. desember 2008.

Tafla 6: Erlend staða Arion banka 31.12.2008 í millj. kr.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Samtals námu erlendar eignir bankans 399 milljörðum kr. og erlendar skuldir 168 milljörðum kr. 31. desember 2008. Þannig voru erlendar eignir 231 milljarði kr. hærri en skuldir. Á móti kemur að lán í erlendri mynt til viðskiptavina sem ekki hafa tekjur í erlendum myntum námu 140 milljörðum kr. Gengisbreytingar hafa ekki áhrif á bókfært verð framangreindra eigna og var raungjaldeyrisstaða bankans því jákvæð um 91 milljarð kr. (erlendar eignir hærri en erlendar skuldir).