Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 887. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1903  —  887. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur um úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki.

     1.      Hver er formaður úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki og hvenær var hann skipaður?
    Áslaug Árnadóttir hdl. var skipuð formaður nefndarinnar 29. apríl 2010.

     2.      Hversu margir úrskurðir hafa fallið hjá nefndinni frá áramótum?
    Frá áramótum og til 1. september sl. hafa nefndinni borist 61 mál og er það metfjöldi mála fyrir þetta tímabil frá upphafi nefndarinnar. Á sama tíma í fyrra var málafjöldinn 33. Úrskurðir hafa fallið í 26 málum og fimm hafa verið dregin til baka á einhverju stigi máls.

     3.      Hver er að meðaltali málshraðinn fyrir nefndinni og er hann í samræmi við þann fjögurra vikna frest sem mælt er fyrir um í samþykktum fyrir úrskurðarnefndina?
    Frá því að gagnaöflun lýkur og nefndin tekur mál til afgreiðslu hafa að meðaltali liðið 3,8 vikur þar til úrskurður er kveðinn upp. Lengst hafa liðið tíu vikur. Eingöngu fimm mál á árinu 2011 hafa tekið lengri tíma en fjórar vikur frá því að gagnaöflun lýkur. Önnur mál eru í eðlilegu gagnaöflunarferli.

     4.      Hefur nefndin skilað ársskýrslu fyrir árið 2010 og ef ekki, er hún væntanleg?
    Úrskurðarnefndin sendi frá sér ársskýrslu fyrir árið 2010 í júní sl. Allir úrskurðir hafa verið birtir á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins, fyrir utan þá úrskurði sem gengið var frá á síðasta fundi nefndarinnar.