Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 888. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1909  —  888. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur um húsnæðiskostnað.

     1.      Hversu hátt hlutfall af ráðstöfunartekjum heimilis hefur húsnæðiskostnaður hérlendis verið að meðaltali árin 2000–2010, sundurliðað eftir árum? Í hverju felst sá húsnæðiskostnaður?
    Hagstofa Íslands hefur tekið þátt í lífskjararannsókn Evrópusambandsins frá árinu 2004 þar sem kannað er hvernig lífskjörum fólks er háttað og hvernig þau dreifast, svo sem eftir kyni, búsetu og aldri. Einn hluti lífskjararannsóknarinnar beinist að húsnæði og leitað er upplýsinga um stærð, gerð og ástand húsnæðis, hvort um eigið húsnæði er að ræða eða leiguhúsnæði og loks um húsnæðiskostnað. Skilgreiningin á húsnæðiskostnaði sem Hagstofa Íslands notar byggist á skilgreiningu Evrópusambandsins í tengslum við lífskjarakönnunina og getur húsnæðiskostnaður verið mismunandi eftir því hvort um er að ræða eigið húsnæði eða leiguhúsnæði.
    Húsnæðiskostnaðurinn í lífskjararannsókn Hagstofu Íslands er skilgreindur sem mánaðarlegur kostnaður í tengslum við réttindi fólks við að búa í tiltekinni eign. Einungis raunveruleg útgjöld vegna húsnæðis eru tekin með og þegar um eigið húsnæði er að ræða er horft til kostnaðar vegna vaxtagreiðslna íbúðalána, trygginga, lögbundinna þjónustugjalda, reglulegs viðhalds og viðgerða á húsnæðinu, skatta og kostnaðar vegna upphitunar, rafmagns og vatnsnotkunar.
    Leiguhúsnæði er skipt upp eftir því hvers konar leigu er um að ræða, þ.e. hvort greitt sé fullt verð fyrir leiguna, hún niðurgreidd (af vinnuveitanda, ættingjum eða opinberum aðilum (ekki húsaleigubætur)) eða hvort viðkomandi leigir íbúðina endurgjaldslaust. Horft er til leigugreiðslna heimila (fyrir utan húsaleigubætur), trygginga (séu þær greiddar af leigjanda), þjónustugjalda (séu þau greidd af leigjanda), skatta á húsnæði (ef við á), reglulegs viðhalds og viðgerða ásamt kostnaði vegna upphitunar, rafmagns- og vatnsnotkunar.
    Hagstofa Evrópusambandsins (Eurostat) birtir samræmdar tölur úr lífskjararannsókninni fyrir hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum heimila. Tölurnar fyrir Ísland ná aftur til ársins 2004 og var húsnæðiskostnaður þá 21,3%. Hlutfall húsnæðiskostnaðar hækkaði árin 2005 og 2006 en hefur lækkað aftur og árið 2010 var hlutfallið orðið 21%.

Tafla 1. Hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum heimilis á Íslandi 2004–2010.

2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010
Ísland 21,30% 23,40% 24,40% 21,40% 22,10% 20,70% 21,00%
Heimild: Hagstofa Evrópusambandsins (Eurostat).

     2.      Hversu hár hefur sambærilegur kostnaður verið í grannlöndum, eins og t.d. í Noregi og Svíþjóð, á árunum 2000–2010? Og hvert hefur hlutfall hans verið af ráðstöfunartekjum í þeim löndum, sundurliðað eftir árum?
    Líkt og áður kom fram birtir Hagstofa Evrópusambandsins samanburðartölur fyrir öll lönd Evrópusambandsins og nokkur lönd utan þess. Í töflu 2 má sjá hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum heimila í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Kostnaðurinn er hæstur í Danmörku en lægstur í Finnlandi. Í Noregi og Svíþjóð hefur húsnæðiskostnaðurinn undanfarin ár verið sambærilegur og á Íslandi.

Tafla 2. Hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum heimila
í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð árin 2004–2009.

2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010
Danmörk – 28,60% 30,10% 28,20% 30,60% 33,80% –
Finnland 16,60% 16,40% 16,60% 17,70% 18,10% 18,50% 17,80%
Noregur 19,00% 14,10% 22,10% 23,80% 23,40% 22,50% –
Svíþjóð 24,50% 24,70% 21,90% 21,50% 21,60% 24,10% –
Heimild: Hagstofa Evrópusambandsins (Eurostat).

     3.      Liggur fyrir opinber stefna um æskilegan húsnæðiskostnað sem hlutfall af ráðstöfunartekjum eftir skatt og ef svo er, hvert er það kostnaðarhlutfall?
    Opinber stefna um æskilegan húsnæðiskostnað liggur ekki fyrir en almennt hefur verið talið í samanburði milli ríkja að ekki sé æskilegt að húsnæðiskostnaður heimila fari yfir 25% af ráðstöfunartekjum heimila. Þess ber að geta að samráðshópur um húsnæðismál skilaði skýrslu í apríl 2011 og er áfram unnið að þeim tillögum sem þar komu fram. Meðal annars er unnið að því að koma á húsnæðisbótum sem ætlað er að jafna húsnæðisstuðning hins opinbera milli ólíkra búsetuforma og stuðla að því að heimili eigi val á milli leigu-, búseturéttar- og eignaríbúða.