Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 908. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.

Þskj. 1917  —  908. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um farþegafjölda í Landeyjahöfn.

Frá Helga Hjörvar.



     1.      Hversu margir farþegar fóru með Herjólfi annars vegar síðasta árið áður en Landeyjahöfn var tekin í notkun og hins vegar fyrsta árið sem höfnin var í notkun?
     2.      Hversu marga daga var siglt í Landeyjahöfn annars vegar og Þorlákshöfn hins vegar á þessum árum?
     3.      Hvernig skiptist fjöldi farþega eftir Landeyjahöfn og Þorlákshöfn á tímabilinu?


Skriflegt svar óskast.